Sherdog.com voru að setja inn nýtt higlight video þar sem hinn ógurlegi blámaður Quinton “Rampage” Jackson er aðalnúmerið. Jackson þessi hefur verið að vekja mikla athygli undanfarin ár í MMA heiminum. Hann byrjaði í Gladiator Challenge og King Of The Cage og barði þar mann og annan af miklum móð. Flutti svo til Japan og hefur verið að gera það gott í Pride.

Varð hann fljótt þekktur fyrir fremur villtan stíl og mikið líkamlegt afl. Hans aðalvörumerki er að lyfta andstæðingum sínum á loft og slengja þeim í gólfið á frumstæðann en afar áhrifaríkann hátt. Einnig er hann með öflugar hendur og hefur til að mynda rotað Cyril Abidi TVISVAR í K-1 þar sem Abidi átti að hafa yfirhöndina. Aðrir menn sem hann hefur sigrað eru t.d Igor Vovchancin, Kevin Randleman, Alexander Otsuka, Dajiro Matsui ofl.

Í ágúst mun hann svo berjast við Vanderlei Silva um Pride millivigtartitilinn og það verður STRÍÐ!

Þið VERÐIÐ að downloada þessu videoi. Án efa það flottasta highlight sem ég hef séð lengi, mjög vel gert og passar vel við tónlistina. Einnig eru í lokin sýnd brot úr viðtölum við manninn og hann er afar fyndinn og mjög orðljótur, heilu setningarnar eru pípaðar hjá honum.

Rampage minnir mig samt óþyrmilega á “góðvin” okkar Skuggapétur, hann gengur um með keðjur um hálsinn daginn út og inn og er allur í þessum “gangsta” fílíng. Kannski þarna sé kominn áhrifavaldurinn ;-)

Jæja, drífið ykkur nú á www.sherdog.com og reddið ykkur þessu vídeoi. Þið sjáið ekki eftir því.