Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Dagfari
Dagfari Notandi frá fornöld 37 ára karlmaður
1.214 stig

St. Germain - Tourist (2000) (3 álit)

í Músík almennt fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Nú hefur ekki verið skrifað hingað inn í langan tíma. Ég ætla að skrifa um aðra breiðskífu franska raftónlistarmannsins Ludovic Navarre, Tourist. Ég gróf þennan disk upp um daginn eftir að hafa hlustað á hann frekar mikið stuttu eftir að hann kom út. Tourist kom út árið 2000 og var gefin út af Blue Note. Plötunnar hafði verið beðið lengi, enda fyrsti plata Ludovic, Boulevard, hrein snilld. Tónlistin er djass kennd hús tónlist í bland við blús og örlítilli slettu af fönki. Það er mjög auðvelt...

Bangkok (3 álit)

í Skátar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Nú er ég á flugvellinum í Malasíu og hef 2 tíma þangað til ég held í 13 tíma flug til London. Dagarnir í Bangkok hafa verið mjög skemmtilegir. Við fórum í skoðunarferðir í konungshöllina, kókoshnetubúgarð og flotmarkað. Við fórum líka og versluðum fáránlega mikið fyrir fáránlega lítinn pening. Í gær fórum við í skoðunarferð á flotmarkaðinn. Við fórum með bát á einni af menguðustu ám í heimi. Markaðurinn var mjög skemmtilegur en það var okrað á öllu þarna. Svo fórum við á Thai sýningu sem...

Slit, brottför og koman til Bangkok (2 álit)

í Skátar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Mótið er búið og við erum komin til Bangkok. Slitin voru ágæt, allavega var hægt að halda sér vakandi út athöfnina annað en á gamlárskvöld og setningunni. Setningin byrjaði með þjóðdönsum ýmissa þjóða, söngvum og öðru þvíumlíku. Svo töluðu einhverjir merkilegir kallar aðeins og stutt myndband með yfirgripi yfir helstu atburðu mótsins var sýnt. Athöfnin endaði svo á því að Tælendingar afhentu Bretum fána alheimsbandalagsins og dönsuðu smá. Eftir mótsslitin var svo haldið heljarinnar diskó sem...

Menningamót, ströndin og tiltekt (3 álit)

í Skátar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Í gær hófst dagurinn á póstum tengdum mismunandi menningaheimum. Ég fékk þemað tungumál. Ég byrjaði á því að læra smá kínverskt letur og meðal annars að skrifa 1-10, kona, tré, skógur og nafnið mitt. Það var ágætt en svo gat ég ekki komist í tælensku og þýsku af ákveðnum ástæðum. Eftir hádegi fórum við á ströndina í dagskrárliðinn “Face the waves”. Ég byrjaði á því að fara út á 16 manna árabát sem kallast festival boat. Mjög langur bátur með miklu skrauti framan og aftan. Eftir bátana fórum...

Hike, friður og mannréttindi (6 álit)

í Skátar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Í gær var fín dagskrá. Við byrjuðum morguninn snemma með kjarnríkum morgunverði. Eftir morgunmat fórum við í “Global Development Village” sem eru póstar um ýmis málefni sem snerta okkur, frið, mannréttindi, heilsu og enviroment (vantar íslenskt orð =). Minn flokkur fékk fyrir hádegi mannréttindi. Við fórum í póst tengdan flóttamönnum. Hann var mjög fræðandi og nú geri ég mér grein fyrir því að hluta hvernig flóttamönnum líður. Hópnum var skipt upp í fjölskyldur og ég var með Kana og 3...

Chill og aftur chill (5 álit)

í Skátar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég hef voða lítið að skrifa um þar sem síðustu dagar hafa verið frekar rólegir fyrir mig. Í dag er allsherjar chill dagur. Engin dagskrá, enginn sérstakur tími til að vakna á, bara rólegheit. Ég ætla að nota daginn til þess að komast í kynni við eitthvað af þessum útlendingum. Dagurinn í gær var mjög rólegur fyrir mig. Ég var veikur heima í tjaldbúð og náði að sofa til rúmlega hádegis, þá var svona 50 stiga hiti í tjaldinu mínu og rakinn svona 90%. Hinir fóru í mismunandi dagskrá fyrir utan...

Áramótagleði (9 álit)

í Skátar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Þá er áramótagleðin búin, bæði í gærkvöldi og klukkan 7 í morgun (miðnætti heima). Ég hef alltaf upplifað áramótin í fjölskylduboðum svo mér fannst nokkuð skrítið að telja niður með 35 þúsund öðrum skátum hérna. Áramótagleðin hófst strax um miðjan daginn hjá okkur þegar við röltum um svæðið okkar og smökkuðum þjóðarrétti annarra þjóða á torginu okkar. Við buðum upp á íslenska Toro kjötsúpu, harðfisk, Góu karamellur og Opal brjóstsykur. Eftir smökkunina var svo haldið fótboltamót á torginu...

Sporðdrekar, flugur og fleiri skemmtileg dýr (4 álit)

í Skátar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Þá er mótið að verða hálfnað, dagur 4 er risinn. Hitinn er mjög hár og sólin að steikja alla. Við förum inn í ofurmarkaðinn hérna til þess að kæla okkur, það er 21 gráðu hiti þar inni. Í gær fórum við í City of Science og settum ógrynni af metum í öllum mögulegum þrautum. Hitinn í tjaldinu er orðinn bærilegur, einn farinn og plássið orðið meira. Við erum 5 eftir og flíspokinn sem ég kom með er notaður sem lak, lakpoki sem ég tók einnig með mér kemur ekkert nálægt mér. Við sofum bara...

Ferðalagið til Thailands (3 álit)

í Skátar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Jæja þá erum við komin á mótssvæðið og ein nótt búin hérna. Ferðin hófst í Hraunbyrgi annan jóladag og var tekið flug frá Keflavík til Heathrow í London. Frá London flugum við mjög skemmtilegt flug til Kuala Lumpur í Malasíu. Flugið tók “aðeins” tæpa 12 tíma en það var hægt að gera sér ýmislegt til dundurs. Í vélinni voru tölvuspil, mismunandi sjónvarpsrásir og slatti af utvarpsstöðvum. Við gistum eina nótt á flugvallarhóteli í Kuala Lumpur og var það kærkominn svefn eftir að hafa verið...

Aðeins 2 dagar eftir! (6 álit)

í Skátar fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Hérna hef ég sett upp kubb þar sem við Tælandsfarar getum bloggað þegar okkur gefst tækifæri til þarna úti. Við munum reyna að segja frá því hvað við gerum þarna, hvernig er þarna og hvað það verður gaman. Tælandsfarar sem vilja aðgang að kubbnum geta spjallað við mig í upphafi ferðarinnar og ég mun bæta einhverjum til þess að skrifa á móti mér (einum til tveimur). Nú eru aðeins tveir dagar eftir af biðinni. Þetta hefur verið löng og ströng bið en hún tekur fljótt enda. Spenningurinn fyrir...

System of a Down - System of a Down (10 álit)

í Músík almennt fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Hljómsveitin System of a Down (hér eftir SoaD) var stofnuð árið 1996 í Los Angeles. Hljómsveitin er skipuð þeim Serj Tankian (söngur), Daron Malakian (gítar), Shavo Odadjian (bassi) og John Dolmayan (trommur). Í lok 1997 skrifaði bandið svo undir plötusamning við American (nú í eigu Columbia Records). Sumarið 1998 kom svo út frumburður sveitarinnar, System of a down samnefndur hljómsveitinni. Hljómsveitin flokkast undir nýaldar-metal og skipar sér þannnig í flokk með sveitum á borð við...

Weezer - Weezer (1994) (6 álit)

í Músík almennt fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Hljómsveitin Weezer var stofnuð árið 1992 í Los Angeles. Hljómsveitin er skipuð þeim Rivers Coumo (söngur, gítar), Matt Sharp (bassi), Pat Wilson (trommur) og Brian Bell (gítar). Lítið gerðist hjá þeim frá árinu 1992 þar til árið 1994 þegar þeir gáfu út plötuna Weezer. Hún náði miklum vinsældum og 3 lög náðu fljótlega á vinsældarlistana, Undone (The Sweater Song) sem náði 6. sæti, Say It Ain't So náði 7. sæti lista og Buddy Holly sem náði upp í annað sætið, öll á Billboard Modern Rock Tracks...

Smashing Pumpkins - Siamese Dream (1993) (7 álit)

í Músík almennt fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Jæja, nú loksins hef ég komið upp “Góðir diskar” kubb. Þetta er fyrsti liðurinn í þeirri áætlun minni að reisa þetta áhugamál upp frá dauðum. Njótið vel Þar sem þetta er fyrsti plötudómur minn biðst ég velvirðingar á öllum göllum í uppsetningu og fleiru. Þetta er í annað sinn sem ég reyni að senda þetta inn þar sem í gær var ég búinn að skrifa inn langa grein og ýtti á senda, þá var Hugi bilaður. Þess vegna skrifa ég allar langar greinar framvegis upp í notepad eða Word. =)...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok