Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Anarcy
Anarcy Notandi frá fornöld 43 ára karlmaður
98 stig

Re: Stöð eitt... til hvers?

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Alveg sama hvað hver segir, það á ekki að neyða fólk til að borga áskrift að ruv ef það kærir sig ekki um það. Það er ekki hægt að segja að þó maður horfi stundum á ruv þá eigi maður að borga, ef maður gæti valið myndi maður sleppa því að horfa á það og eyða peningunum í annað!

Re: Já bara engar greinar???

í Heimilið fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Sjáfur vel ég ljósa málningu. Ég heyrði að ef lítið herbergi er allt málað ljóst en einn veggurinn hafður dökkur myndi herbergið líta út fyrir að vera stærra!

Re: Takið frekar koffeintöflur en riffjúl í guðanna bænum!

í Djammið fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Taktu aðeins of stóran skammt af koffíntöflum og segðu svo að þær séu skaðlausar!!!

Re: Bestu illmennin

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ussussuss, þú gleymir aðalvondamanninum, sem er náttúrulega karakterinn sem Hilmir Snær lék í 101 Rvík. Ég meina, hvers konar óþverri ríður kærustu mömmu sinnar!?!?!

Re: Sumir eru óheppnari en aðrir

í Sorp fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Þetta kallast ekki óheppni fyrir fimmaur….

Re: Ekki nota nikótíntöflur!!!!!!

í Djammið fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Þakka þér stuðninginn Akarn :), það er “gaman” að vita að ég er ekki sá eini sem hef gert þessi mistök, manni finnst þetta ekkert virka þegar maður tekur bara eina…blekkjandi!!!

Re: Ekki nota nikótíntöflur!!!!!!

í Djammið fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég var búinn að leiðrétta misskilningin á koffeintöflunum (smá að flýta mér :) ), en samkv. lækninum úti þá ullu töflurnar eitrun eða einhverjum andskota í nýrunum (gæti verið vegna þess að ég drekk ekki kaffi, óvanur koffíni). En þau ykkar sem hafið áhyggjur af fíkn minni þá hef ég þær gleðifregnir að ég sagði skilið við allar gerðir orkutafla eftir þetta “skemmtilega” atvik :)

Re: Ekki nota nikótíntöflur!!!!!!

í Djammið fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég biðst innilegrar afsökunar, þetta átti að vera Koffeintöflur! Þetta sannar mál mitt, koffeintöflur skemma…

Re: Spotlight

í Djammið fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Haha…alltaf er allt tekið úr samhengi!

Re: Líf þarna úti

í Geimvísindi fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég las grein í Lifandi vísindum um stærðfræðing sem reiknaði út að miðað við stærð alheimsins ( og einhverjar svaka formúlur) að það ætti allavega að vera líf á um 10000 hnöttum. Og varðandi það af hverju geimverur séu þróaðri en við, þá er það ekki ólíklegt þar sem (allavega mjög margir sjónarvottar staðhæfa það) geimverur eru allavega búnar að finna jörðina og fljúga um á vel þróuðum geimskipum. Og þá getum við spurt okkur; hvað höfum við fundið????

Re: Hengdu kött fyrir framan leikskólabörn!!

í Kettir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég var að meina að þeir sem kveldu dýr tl þess eins að kvelja þau, ættu að fá það sama í refsingu. Auðvitað þarf að lóga dýrum eða selja kjötið af þeim, en nú þegar dýrum er slátrað er reynt að láta þau finna sem minnst til!

Re: Nokrir skondnir brandarar:)

í Húmor fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Helvíti góðir :)

Re: Stelpur og Strákar

í Rómantík fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég held að ef strákar og stelpur skildu hvert annað væri ekkert fútt í tilhugalífinu :)

Re: leitin að stóru ástinni. :)

í Rómantík fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Kannski ef þið hefðuð hist hefði ástin blómstrað. Vinur minn kynntist stelpu í gegnum ircið, og gettu hvað….Þau eru gift í dag með familí og alles:)

Re: Trúlofun

í Rómantík fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Þetta er sko góður gæi með balls! Til hamingju :)

Re: Drottningarviðtal við Davíð

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Það fer ekki á milli mála Nuff, að þú bara hlýtur að hafa verið ofdekraður pabbastrákur með þessar hallelúja skoðanir á Davíð… Ég þekki engan sem hefur haft það slæmt sem styður Dabba kóng, og að segja að allir sem dissi Dabba séu 14 ára unglingar er skot út í loftið!!!!

Re: Veikara kynið ?

í Rómantík fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Mig langar að leiðrétta eitt Daja. Karlar eru með hærri sársaukaþröskuld en konur samkvæmt rannsóknum og þykjast vísindamenn nú loksins vera búnir að fullkanna þetta. Hins vegar geta konur þolað sáraukann aðeins lengur þegar hann er kominn á hámarksþolpunkt hjá þeim. Þetta kom fram í Lifandi vísindum!

Re: Hengdu kött fyrir framan leikskólabörn!!

í Kettir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
ÞA virðist ekki skipta máli hvað ég segi…það er allt tekið úr samhengi :)

Re: Neðanjarðarlestir

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég er sammála, strætó sökkar, þess vegna nota ég bíl. En ég er nokkuð viss um að Ísland fer á hausinn við að koma upp lestarkerfi nema ef það yrði byggt upp á svona 150 árum.

Re: Jólin...

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ekki nóg með að ég þurfi að kaupa fullt af jólafjöfum heldur á kærastan mín afmæli í desember (sláðu það út). Annars finnst mér leiðinlegt að eyðileggja það fyrir öllum, en þá voru rannsóknarblaðamenn í Páfagarði að komast að því eftir geðveikar rannsóknir að Jesú átti líklega ekki afmæli í desember! Þannig að núna eru jólin í raun bara hátíð ljóssins.

Re: Hengdu kött fyrir framan leikskólabörn!!

í Kettir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Zedlic, við erum að tala um dýr og ofbeldi gagnvart þeim, ekki nauðganir á Eldborg eða eitthvað svoleiðis….

Re: Fleira fólk!

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ef einhver er að dissa það að útlendingar flytji hingað ætti hann aðeins að hugsa málið betur. Íslendingum finnst sjálfsagt mál að planta sér hvar sem er í heiminum eftir nám eða bara til að leika sér og vinna, allir íslendingar yrðu hissa ef illa yrði tekið á móti þessum fallega hvíta kynstofni og það yrðu viðtöl við það fólk sem lent hefði í böggi úti í öllum blöðum. En samt um leið er erfitt að taka á móti útlendingum í dreifbýlið!

Re: Bíðum eftir að Davíð Oddsson hætti.

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Hvað er málið????? Davíð hefur gert ýmislegt gott en það er líka ýmislegt sem hann hefur gert sem þjónar engum tilgangi nema hlaða skuldum ( Perlan t.d.). Hann er ekki heilagur eða fullkominn, troðið því í hausinn á ykkur að hann er maður ríka fólksins. Það sést best á því að skattbyrðin er mest hjá láglaunafólki en minnst hjá fólki með háar tekjur….hugsa áður en þið setjið X við D!!!!!

Re: Týndur í 3 daga...

í Kettir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Gott að þú fékkst kisuna þína aftur, ég hef átt tvær læður, önnur týndist eins árs en hin lifði það að verða ellefu ára, alltaf leiðinlegt að týna kisunni sinni!

Re: Hengdu kött fyrir framan leikskólabörn!!

í Kettir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Mér finnst persónulega að þeir sem kvelja saklaus dýr ættu að fá sömu meðferð í refsingu, í þessu tilviki ætti semsagt að hengja helvítis beyglurnar!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok