Ég er að pæla í því ef að lífverur utan úr geiminum sem að eru miklu þróaðari en við vita um okkur og hafa heimsótt okkur oft, hvers vegna vitum við þá ekki af því betur? Er það kannski að það hlýtur þá að vera einhver leynisamtök sem að eru að hafa samband við geimverurnar, en leyna því með að hafa kannski reglur?

Kannski er það kannski bara þannig en ég veit ekki, mætti þá segja að það gæti verið að geimverurnar mættu bara lenda á sértstökum og afskektum stöðum þar sem að littlar líkur eru á að einhver sjái til eða á stað bannaðum frá mannfólki öðru en því sem að vinnur þar t.d. mætti nefna Area 51, en maður veit heldur aldrei hvort að þar fari fram geimveru-krufningar of.l. eða ekki.
Þá geta geimverur ábyggilega brotið reglurnar og farið um í leyfisleysi og komi upp undrun, kannski eru geimverurnar bara að leika sér.
Eins og í myndinni Signs, þetta hefur gerst og líka að heilu akrarnir eru litaðir rauðir, það hefur líka gerst. Gæti ekki bara verið að geimverurnar séu að leika sér eða þá að skrifa einhver skilaboð. Maður veit aldrei,
hið ómögulega getur alltaf gerst, ég get ekki trúað öðru en að geimverur eru þarna úti í geiminum því að það er talið að um trilljónir pláneta eru þarna úti eða eitthvað um 1*10 í 18 veldi. Það getur ekki verið annað en að líf sé þarna úti og líka gæti það verið að líf sé að kvikna einhversstaðar.

Ef að heimurinn er strönd þá er ég sandkorn!!!!!

Ég meina ef að þið hugsið um það þá er heimurinn svo stór að líkurnar svo miklar að það gæti ekki verið annað, svo eru þessa óútskýranlegu atburðir að gerast allt um heiminn. Það eru til nóg af ástæðum afhverju geimverur ættu að vera til.