Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Anarcy
Anarcy Notandi frá fornöld 43 ára karlmaður
98 stig

Er kommúnismi raunverulega kommúnismi? (17 álit)

í Sagnfræði fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Ég hef oft verið að ræða við fólk, bæði hér á huga sem og á fleiri stöðum um það hvernig hægt sé að skilgreina Kína, Kúbu, Rússland(gamla) og öll önnur “kommúnista”lönd sem kommúnistaríki. Núna er ég ekki að fara út í það hvort að kommúnismi er góður eða vondur, en mér hefur bara alltaf fundist sem að öll ríki sem hafa aðhyllst kommúnisma hafi endað í einhverju allt öðru kerfi og þess vegna finnst mér alltaf hálf hjákátlegt þegar fólk talar um að þetta séu kommúnistaríki. Samkvæmt...

Hotmail spurning (1 álit)

í Netið fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Var að kíkja á hotmailið mitt og ætlaði að hreinsa út (farið að fyllast ansi mikið) Svo sé ég að það er bara 1% fullt og ég á 1000mb pláss, fyrir viku var plássið bara 25mb. Er þetta eikkað nýtt eða?

Ætlar þú á Timo Maas á Nasa 24 Feb. (0 álit)

í Djammið fyrir 18 árum, 2 mánuðum

Löggunni leiðist (21 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Lenti í því í gærnótt þegar ég var að keyra út í búð að löggan elti mig og stöðvaði mig svo (gerði það líka í fyrrinótt). Hélt að nú ætti bara að ath. ástand ökumanns og jú jú, löggan gerði það, lýsti þessi ósköp í augun á mér og svo vildi hún endilega leita í vösunum mínum og svo þurfti hún líka að leita í bílnum. Skemmst frá því að segja að hún fann ekki neitt. En það sem sat í mér er það að þegar hún var búin að leita þá var eins og löggan væri eikkað ósátt við að geta ekki klínt neinu á...

Níska Íslendinga á alþjóðavettvangi (69 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Ætlaði að skrifa um þetta fyrr, en þannig er mál veð vexti að ég var að lesa dagblaðið um daginn og sá þar að Ísland leggur minnst af mörkum í neyðarhjálp fyrir fátæka í þriðja heiminum af öllum norðurlöndunum, sem og fleiri þjóðum ef ég man rétt (svona vika síðan ég las þetta). Ef ég man rétt eru útjöld ríkisins til þróunarhjálpar aðeins 0,17% af heildarútgjöldum. Mér finnst þetta ansi léleg frammistaða af hálfu ríkissins og finnst að ein ríkasta þjóð í heimi eigi að geta séð af aðeins...

greinaþjófar (16 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Var að lesa grein um kvennafrídaginn og það er alveg merkilegt að stór hluti af svörum við þeirri grein fjallar um það hvort 50 cent eða einhverjir aðrir séu “svalir”. Af hverju ekki bara að starta annari grein fyrir þá sem vilja ræða það eikkað frekar, en nota kvennafrídagsgreinina í að tala um, tja, ég veit ekki, t.d. kvenréttindi! Svona rugl er ansi algengt á Huga, hef meira að segja ábyggilega sjálfur farið útaf sporinu án þess þó að hafa ætlað það.

Snus- Misskilningur (19 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Var að lesa grein um munntóbak á áðan og var að pæla í því hvort þeir sem voru eikkað að tjá sig um það vissu eikkað um það? Það eru nefnilega margir sem halda að SNUS sé miklu hættulegra en sígarettur, það er rangt, Snus inniheldur miklu meira nikótín, en sígarettur eru hins vegar gerðar úr fleiri þúsund baneitruðum efnum eins og t.d. blásýru. Ég las einhvern tímann fyrir nokkrum árum (tók sjálfur í vörina og geri ennþá) um niðurstöður nokkurra rannsókna sem sýndu fram á það að SNUS eykur...

Uppskrift að góðu hjónabandi (0 álit)

í Matargerð fyrir 19 árum
Hlýðin kona er nr. 1, 2 og 3. Ef það klikkar er alveg eins hægt að finna sér skilnaðarlögfræðing :p Blandist svo saman í skál og hrærist vel…. af kvenmanni og hananú! Svo er gaman þegar konurnar reka nefið inn í vinnnustofu hæstvirts eiginmannsins á kvöldin (ekki verra að vera vel til höfð) og láti vel að honum þar sem hann þarf nú að bera allar byrðar heimsins á herðum sér og borga reikningana og sápurnar fyrir konuna sína.

Lögregluríkið Ísland (82 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Sæl öll, ég lenti í þeirri spennandi reynslu fyrir ekki alls löngu að vera handtekinn fyrir vörslu fíkniefna. Ég afhenti sjálfur lögreglunni efnið eftir að hún bað um að fá að leita í bílnum. Ég vil taka það fram að lögreglumennirnir sjálfir voru mjög almennilegir og fannst mér ekkert athugavert við þeirra frammistöðu enda bara að vinna sína vinnu. Þeir semsagt handtóku mig og farið með mig upp á stöð. Þar var leitað betur í bílnum og á mér…. Skemmst að segja frá því að ekkert meira fannst,...

Hvað finnst þér um Britney Spears? (0 álit)

í Fræga fólkið fyrir 20 árum, 9 mánuðum

Reimleikar í líkbíl (1 álit)

í Dulspeki fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Hæ, ég var að lesa smá í Öldinni okkar sem var gefin út árið 1975 af Iðunni (vill ekki verða sakaður um ritstuld, skrifaði upp úr bókinni :). Og þar er eftirfarandi frásögn sem skrifuð var í Mbl 02.02 1944. Reimleikar í líkbíl: Blaðið hefur frétt um einkennilegan atburð sem gerðist hér í bænum fyrir stuttu síðan. Maður nokkur ætlaði að kvöldlagi með bifreið sína á bílaverkstæði. Maður þessi hefur greiðan aðgang að verkstæði þessu. Er maðurinn kom að verkstæðinu fór hann fyrst inn um dyr sem...

Séð og Heyrt (1 álit)

í Tilveran fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ég var að kíkja í Séð og heyrt frá síðustu viku og guess what? Á forsíðunni var klausa þar sem stóð eikkað á þessa leið (man ekkert nafnið): Tóti tönn á fullu í laxinum…svo stóð fyrir neðan: Veiddi risaURRIÐA. Þvílík og önnur eins blaðamennska. Þessir blaðamenn hjá Séð og heyrt have no shame! Kv. Kjanakall (sem er hreint engin kjáni)

Guð blessi dómskerfið (42 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég bara varð að gera smá læti yfir grein sem ég las á mbl.is fyrir stuttu, þar kom fram að maður með sitt eigið fyrirtæki hafði svikið ca. 10 millur undan skatti yfir nokkur ár. Ekkert athugavert að refsa honum fyrir það en sektin hljómaði uppá 20,5 milljónir!!!! Semsagt bæta helming ofaná, þess má geta að engin starfsmaður ríkis né bæjar hefur þurft að fá áfallahjálp vegna þessa stórglæps og megum við teljast heppin að búa í landi þar sem harkalega er tekið á svona stórkrimmum. en svo er...

Sigga litla, ekki fyrir viðkvæma :) (0 álit)

í Húmor fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hún Sigga litla fæddist blind og var búin að lifa með blindunni í sjö ár þegar móðir hennar sagði við hana á sjö ára afmælisdeginum “Eftir nákvæmlega eitt ár færðu sjónina Sigga mín og færð að sjá alla fuglana, blómin, trén og sólina”. Og Sigga litla varð rosalega spennt og ekkert gerðu þær mæðgurnar eins mikið af eins og að tala um hvað það yrði gaman þegar Sigga litla fengi sjónina aftur og fengi að sjá blómin og fuglana og blómin. Þegar aðeins nokkrir dagar voru í átta ára afmælisdaginn...

Ég vorkenni..... (22 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég vorkenni þeim sem eru búnir að selja sál sína D-listanum, ég vorkenni þeim sem trúa öllu sem kemur út úr Davíð Oddsyni, ég vorkenni þeim sem fatta ekki að 6,3 milljarða styrkur fyrir atvinnulífið er kosningatrikk, ég vorkenni þeim sem hafa alltaf kosið D-listann meðvitað eða ómeðvitað vegna þess að þeir voru alin upp við að D-listinn væri eina von lýðveldisins, ég vorkenni þeim sem halda að allt gott sé D-listanum að þakka, ég vorkenni þeim sem halda að allir vinstri menn séu kommar að...

Skotinn í draumi (0 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Oftast þegar mann dreymir eitthvað vaknar maður áður en eitthvað slæmt gerist. En ég hef stundum lent í því að deyja í draumi og finna það gerast. Mig dreymdi til dæmis einhverntíma að ég var skotinn í kviðinn og fann hvernig ég lyppaðist niður og varð máttlaus í líkamanum. Ég var með litla skammbyssu í hendinni og þegar ég lá á maganum reyndi ég að beina byssunni að þeim sem skaut mig og sá þá þegar hann miðaði með riffli á hausinn á mér og skaut svo. Þetta var soldið cool af því ég fann...

Jólatónlist (12 álit)

í Hátíðir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Það er ekki margt sem kemur manni í meira jólaskap en jólatónlistin og þá skiptir máli að velja réttu tónlistina, og oftast tengist hún því sem að við höfum alist upp við að heyra frá því að við munum eftir okkur. Sem er að svolitlu leyti smá fortíðarþrá. Heima hjá mér er t.d. alltaf spilaður Bing Crosby jóladiskur yfir bakstrinum og núna þegar ég hef tekið yfir piparkökubaksturinn finnst mér alveg ómissandi að hlusta á Bing Crosby. Svo eru líka önnur klassísk lög eins og Last christmas með...

Vantar smá info!! (7 álit)

í Borðaspil fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég hef aldrei spilað svona borðaspil en hef verið að lesa greinarnar hérna á Huga og finnst þetta soldið áhugavert. Það væri gaman ef þið gætuð sagt mér hvað þarf að kaupa, kostnað við þetta og þess háttar…..Það eina sem ég veit er að þetta fæst í Nexus. Með von um góð svör. Kv. Kjanakall

Að hluta á ensku (0 álit)

í Húmor fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Jói og Óli voru bræður sem voru búnir að mana hvorn annan upp í að blóta næst þegar mamma þeirra myndi gefa þeim morgunmat. Um morguninn þegar mamma þeirra spurði hvað þeir vildu sagði Jói: give me a fucking cocoa puffs! Mamman sló hann og sagði honum að koma sér upp í herbergi, þannig að Jói hljóp grenjandi upp. Svo spurði hún Óla hvað hann vildi, og hann svaraði: You can bet your ass it won´t be a fucking cocoa puffs!

Ekki nota nikótíntöflur!!!!!! (29 álit)

í Djammið fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég fór til Mallorca í sumar og það er ekki í frásögur færandi nema að hið margfræga Ripped Fuel er ekki selt þarna úti (vonbrigði). Ekki það að ég sé alltaf að overdoza svoleiðis efni en það getur nú samt verið hressandi þegar maður er þreyttur og nennnir varla að djamma að taka inn nokkrar töflur (það gengur ekki að djamma ekki á Mallorca!). En apótekaradaman benti mér á annað…Nikótíntöflur, sagði mér að taka bara eina á 8 klst. fresti, ég eins og sannur íslendingur tók ekki mark á því,...

D-listinn vs. rest. (1 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Mig langaði aðeins að fara aftur í tímann til borgarstjórnakosninganna, ég átti þá nokkra harða d-lista vini sem héldu með d-listanum útaf vel skipulögðum áróðurs auglýsingum og þeim sérstaka hæfileika d-lista fólks að kenna öllum hinum um. Eftir að ég var búinn að ræða við þessa “d-vini” í svona eins og fimm mínútur voru þeir ekki lengi að púa á D listann. D-listinn var nefnilega svo sniðugur að nota skuldasöfnun R-listans í baráttunni, en málið er bara það að D-listinn hefði þurft að fara...

Yfirborðsmennska! (1 álit)

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Það er ótrúlegt hvað það er hreint FRÁBÆRT að búa hérna á þessu landi, við höfum glimrandi hresst fólk eins og Völu Matt, Andreu og svo má ekki gleyma Svala, Einari Águst og Heiðari á FM til að lífga upp á tilveruna. En einhvern tímann fær maður nóg af öllu þessu súper jákvæða viðhorfi, þetta fólk er í vinnu við að heilaþvo okkur og láta okkur halda að Justin Timberlake og Britney Spears séu cool og fM rúli og Völu Matt tókst næstum því að láta mig að Leoncie væri töff! Svona súper stemmning...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok