Hæ. Ég er að oft að spjalla við fólk á förnum vegi um pólitík og ég verð hreinskilnislega að játa að ótrúlegasta fólk er komið með ofnæmi fyrir Davíð Oddssyni. Það er nóg að nefna manninn á nafn til þess að fólk sýni ofnæmisviðbrögð. Margir segja “hann hlýtur að fara hætta karlinn” aðrir tala um það hvað hann sé alltaf pirraður, uppstökkur og hundleiðinlegur. Ég verð að segja að hann er einn leiðinlegasti forsætisráðherra fyrr og síðar, alltaf með skítkast og snýr öllu upp í nöldur og þras. Ég spyr ykkur Hugarar í einlægni, burtséð frá pólitík, er ekki kominn tími á að hann hætti? T.d í Bandaríkjunum eru forsetar bara í tvö tímabil (8 ár),
ég vona að við förum að losna við þennan ergilega, og hrokafulla mann sem að búinn er að vera við völd alltof lengi.