Það var hins vegar tvítugur unglingur í Michigan sem að hafði verið að reyna að komast að sem áhættuleikari um margra ára skeið. Hann hafði aldrei fengið svar frá kvikmyndaverunum í Hollywood og var orðinn heldur þreyttur á því. Um helgina tók hann upp á því að búa til nokkuð sérstaka umsókn sem hann ætlaði að senda í kvikmyndaverin. Drengurinn fékk vin sinn til þess að mynda hann á meðan hann kveikti í sér. Það sem verst var að vinurinn gleymdi að ýta á Record takkann og á endanum gat hann ekki slökkt í sjálfum sér og það þurfti að hringja á slökkviliðið. Þá kom í ljós að drengurinn hafði verið blindfullur á meðan á áhættuatriðinu stóð og verður drengurinn sennilega kærður fyrir að meðhöndla áfengi undir lögaldri.
Heimsmet í óheppni.