Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

959
959 Notandi frá fornöld 2 stig

Re: BMW E21 323i

í Bílar fyrir 23 árum
Þetta var nú það flottasta hérna í gamla daga og er enn mjög spes, maður tekur eftir þeim fáu sem eftir eru í umferðinni. Ég hef nú samt ekki rekist á gott eintak í ansi mörg ár. Ætli það sé til einhver góður '87 325i Shadow line (M-technic) lengur?

Re: Smá könnun :)

í Bílar fyrir 23 árum, 1 mánuði
1. Porsche 959 2. Porsche 930 (orginal 911 turbo) 3. Porsche 911 turbo (993) 4. Porsche 911 GT2 (993) 5. Ferrari F40 6. Mclaren F1 LM (aðeins 5 til!) 7. Mercedes Benz CLK-GTR með 6.9 V12 frekar en twin turbo V8 8. Ford GT40 Mk1 og svo Mk2 með stóru sleggunum. 9. Chevrolet Corvette Z06 (405hp) varð að hafa einn Ódýran!!

Re: Ferrari Enzo

í Bílar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þetta er náttúrulega stórmerkilegur bíll og á víst að vera sá sneggsti á braut. En Makkinn er náttúrulega sá hraðskreiðasti 240.1 mph (386.7) engin sögusögn, mælt og skráð. En ég verð að vera sammála Bebecar þetta er jú forljótur bíll og þá er ég að miða við bíla í svipuðum klassa, kannski miðað við venjulega Primeru er hann flottur.

Re: Hver er besti gti bíllinn sem gerður hefur verið!

í Bílar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ef þú heldur að bíllinn komist eitthvað hraðar útaf stífri fjöðrun og breiðari dekkjum ertu bara fífl og sjálfur hef ég botnað VTI hondu (225 km/h við 7600 rpm) gamla boddíið fór í 230 í 8000 rpm, (þú getur ekki neitað því 626. 260, common)

Re: Hver er besti gti bíllinn sem gerður hefur verið!

í Bílar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég hef átt marga og prófað marga en Clio 16V er sennilega skemmtilegasti GTI vagninn að mínu mati, en svona fyrir utan það þá er það nú lyginni líkast að gömul 626 GT Mazda sé að toppa í 260 km/h, ég meina þú ert að fara fram úr M3 (orginalnum) og loftpressu sem eru báðir að toppa í 250, venjulegir GTI bílar er að fara svona 220-230 max.

Re: Er einhver Porsche 911 til hér??

í Bílar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það er til a.m.k. einn 993 bíll hér á landi. 986 er ekki það sama og 911, 986 er týpuheitið yfir boxter.

Re: Hinn kúplingslausi gírkassi Ferrari.

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Eru ekki komnar nýjar reglur sem að munu banna gripstýringu og jafnvel núverandi skiptingar, þannig að it´s all for nothing hjá Ferrari?

Re: Tuning (drivetrain)

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Svona common sense segir að það hljóti eð vera meira orkutap í rwd heldur en fwd, ég meina þú ert að flytja aflið mun lengri leið, en ef þetta er ekki satt þá bara endilega að fá útskýringu.

Re: BMW M1

í Bílar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þetta er þrælmagnaður bíll, bara lookið er orðið svolítið dated, og felgurnar alveg skelfilegar. Það er til kvikmynd sem heitir Cannonball (ekki Cannonball run) þar sem að gulur M1 fer að aðalhlutverkið ásamt David Carradine, hann er nú samt sjálfur á Firebird minnir mig. Þessi mynd er ekki til á landinu, ég sá hana ‘82-’83 hefur einhver hérna séð hana.

Re: Markmiðin mín

í Bílar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Jæja, Maður verður nú bara að eignast 911 loftkældan (helst 930 eða bara standard 964,993), ég er að reyna að vera raunsær. Svo er það nú náttúrlega að komast á goodwood, það hlýtur að vera algjör draumur að sjá allt milli himins og jarðar svo lengi sem það er á hjólum og kemst oftast mjög hratt. Ásamt því að sjá eina formúlukeppni, þ.e.a.s. þegar að einhver spenna er um titilinn. Varðandi 911´una þá er ég bara svo hræddur um að mér finnist hún einhvað anti-climax loksins þegar að maður...

Re: Ferrari F50

í Bílar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ferrari F40 er sennilega sá allra vígalegasti Ferrari ever þó svo 250 GTO og 288 GTO séu stórglæsilegir. F50 hvað er nú það og hvað þó þetta Enzo dót (Það er sko fokkljótur bíll). Annars held ég svona almennt að Porsche 959 hafi formlega startað þessu Ofurbílakjaftæði, ég meina performance´ið í þeim bíl var náttúrulega langt fyrir ofan allt sem þekktist á þeim tíma og er ennþá einstaklega gott í dag. Og eins og allir vita þá kom Ferrari með sinn flottasta Ferrari (F40) fljótlega á eftir 959´unni.

Re: Hugabíll ársins 2002

í Bílar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
1. Chevrolet Corvette Z06 (2002 405hö) nammi nammi namm.

Re: Halló áhugamenn hér er (sosvovloldodiðoð)

í Bílar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Porsche 911 turbo (930) 1980 módel virkilega fallegur bíll, Þó svo Imprezurnar séu öflugar þá verður nú seint sagt að nýja Imprezan (miklu ljótari enn gamla, gamla er flott) þó svo að það sé WRX STI sé fallegasti bíll á Íslandi (COMMON!).

Re: Sunny GTI

í Bílar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Í bæklingnum frá IH. er GTI'inn gefin upp 8.2 sek 0-100km/h en svo allt niður 7.2 sek 0-60mph í Performance Car. En algengustu tölur voru 7.5 (0-60mph), fann þær í þremur blöðum á sínum tíma sem er samt svoldið ótrúlegt þar sem að púkkinn (1.9 GTI) er venjulega gefin upp 7.8 og 7.9 en var samt að taka Sunnyina upp í 100km/h.

Re: Sunny GTI

í Bílar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Varðandi Sunny GTI-R þá voru til tveir einn svartur (er enn til) og einn steingrár (hefur ekki sést í mörg ár). Og svo var til einn hvitur GTI með GTI-R húdd, held að sá bíll sé dáinn (var allavega að hrynja fyrir stuttu) og húddið sé núna á öðrum hvítum GTI (Ekki sama númer á þessum bílum). Varðandi afl þá er GTI-R 220Hö og 4WD og er víst sneggri en Imprezur (GT og WRX nýi), ((þær heita ekki turbo á Íslandi!)).

Re: Sunny GTI

í Bílar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Nissan Sunny 2.0 GTI voru afar skemmtilegir bílar, punktur og kalla ég ekki allt ömmu mína. Minn var hvítur 3 dyra ‘92 ekinn 60.þús. Átti hann ’96-'98. Ég held nú samt að í dag séu þeir orðnir flestir ef ekki allir mjög þreyttir. Besti sénsinn væri að kaupa síðustu árgerðina (´94), eins lítið keyrðann og hægt er og sjæna hann upp. Varðandi aksturseiginleika eru þeir mjög fínir og fékk hann mjög góða dóma almennt. Aflið er alveg þokkalegt, sterkastur í 3 gírnum. Enginn óbreyttur golf ´87...

Re: Könnun

í Bílar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Smá leiðrétting, Bugatti EB 110 og EB110S eru 3.5 lítra V12 ekki 9.0 lítra V8 (ásamt 4 túrbínum og 60 ventlum). Og var þetta quote ekki frá því þegar hann er að standa Jaguarinn (XJ220) en ekki Bugattíinn.

Re: Mika Hakkinen

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hakkinen er snillingur, megi hann lengi lifa.

Re: Porsche CarreraGT

í Bílar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Mikið er það nú gaman hvað það eru margir Porsche dellukallar hérna, aldrei nóg af því.

Re: Porsche CarreraGT

í Bílar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég hef þetta úr grein í Sportscar International um 996 GT2, þá er þetta tekið fram að GT3 sé fljótari en gamli GT2 (993). Annars minnir mig að ég hafi lesið það einhversstaðar að það sé væntanleg endurútgáfa af GT3 sem að verði 380Hö.

Re: Porsche CarreraGT

í Bílar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mig minnir að 959'an hafi verið framleidd í 283 eintökum. Mal3, ég er að meina af 996 boddíinu sem er mikið síðra en 993 þá sé GT2 flottastur. En svona þeir fallegustu Porsche´ar finnst mér vera original 930'an og svo 911 turbo (993) (ekki S) silfurgrátt með gráu eða svörtu leðri. Enn það er samt ótrúlegt hvað 996'an er fljótari á braut en 993. 911 GT3 (996) á víst að flengja 911 GT2 (993), þrátt fyrir t.d. 70 hestafla mun, og væntanlega mun meiri torkmun.

Re: Porsche CarreraGT

í Bílar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Porsche 911 GT2 (993) er án efa einhver víga legasta 911 ever. Og af 996 er GT2 líka flottastur. Einhvernveginn er þessi Carrera GT bara ekki að heilla, sem er eitthvað annað en 959'an gerði hérna í den.

Re: Porsche 911 (930)

í Bílar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þessi fjólublái er original 930 bíll '80 módel, ég kannast við nokkra sem hafa átt hann. Leó M. Jónsson skrifaði stutta grein um hann, (á hana til einhverstaðar) hérna um árið í Bílnum, þar hélt hann því fram að það væru til 2 stykki hérna á klakanum, en ég hef aldrei komist að því hver hinn er.

Re: Peugeot 205 GTi/CTi: 1984 - 1994

í Bílar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Árið 1993 í Performance Car var Peugeot 205 1.6/1.9 GTI valinn besti bíll áratugarins frá ‘80 til ’90. Það voru nú samt ansi margir skemmtilegir kandidatar : Audi Quattro, 959, Sierra RS Cosworth, M3, M5, MX-5, 911 C2 (964), NSX. Sjálfur hef ég keyrt marga 205 GTI (4 stk) allt 1.9, og átt svoleiðis bíl og eins allir vita þá er þetta mjög líflegur bíll í akstri.

Re: Hvað er sportbíll?

í Bílar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Vissulega er Evo mjög gott blað en saknar enginn gömlu Performance Car blaðanna.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok