Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

zorglubb
zorglubb Notandi frá fornöld Karlmaður
4.002 stig
Áhugamál: Ljóð, Kettir, Danstónlist
—–

Re: Ófullburða afurð IV

í Ljóð fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Einlægt og gífurlega fallegt, ljóðagaupa =o)

Re: Staðnað áhugamál

í Grafísk hönnun fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Dooh, láttekkisvona, þér finnst hún soldið sæt með bláan hanakamb og tattú, viðurkenndu það bara. :P Glúbbi smekklausi =)

Re: Skýjum Ofar, blessuð sé minning hans

í Raftónlist fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Ég sagði það nú hvergi í greininni að skýjum ofar væri það fyrsta sem ég vissi af, ég tek það fram núna að ég var landsbyggðarpakk og flutti ekki til borgarinnar fyrr en ég var 20 :) Heyrði einstaka slitrur af oldschool hardcore og mússik frá fæðingu jungle og ragga kjaftæðisins, en eins og ég segi, ég er utan að landi og hafði þá ekki xið eða fleiri borgarstöðvar. Svo flutti ég í eitt ár aftur út á land og var sjálfsagt einn af þremur einstaklingum í öllum bænum sem fíluðu breakbeat,...

Re: Fátækt til sölu

í Deiglan fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Að setja koktailsósuna á borgarann er bara sjúkt :Þ En annars er ég sammála því að þessi “101-kúlista-innhjáþotuliðinu-hórumenning” er komin út í hálfgerðar öfgar.

Re: Staðnað áhugamál

í Grafísk hönnun fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Ég skaut á alla sem tengjast þessu áhugamáli, ekki bara adminsana :/ btw, ég vil fá plastöndina mína uppá vegg! hoho (þessa sem ég hef sent þrisvar :) )

Re: Andvökuvísur

í Ljóð fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Svo ég afhjúpi nú fáfræði mína í þessum efnum :) tmar, kvenrím og karlrím, í hverju felast bæði? Maður lærði þetta sosum í skóla en svissneskur ostur er réttnefni yfir heilann í mér.

Re: Í myrkri ísgjá

í Ljóð fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Tja, neinei,,, eins og ég sagði hérna ofar þá er þetta líka um aðra sem hafa lent í svona hörmungum í gegnum tíðina.

Re: Andvökuvísur

í Ljóð fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Mátt það ef ég fæ sporslur =o) hehe

Re: The Terminator 1 & 2

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Atriðið þar sem Arnold eltir T-1000 og strákinn á harleyinum sínum, dælir úr haglarannum sínum og hleður með annari hendi er ofursúpersvalt! =)

Re: Í myrkri ísgjá

í Ljóð fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Ég fékk þetta ljóð í kollinn þegar rifjaðist upp fyrir mér dauðdagi björgunarsveitarmannsins sem féll til dauða á Vatnajökli fyrir stuttu. Slíkan dauðdaga hafa nú ófáir íslendingar hlotið í gegnum tíðina og spurning hvort allir hafi þeir fundist.

Re: Andvökuvísur

í Ljóð fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Þessar tvær vísur voru samdar af einskærum kjánaskap og hafi ég gaman af :) Var lítið að pæla í þeim meira þar til ég henti þeim hingað.

Re: Kristján fjallaskáld

í Ljóð fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Góður! :)

Re: Endir

í Smásögur fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Hugsanlega. Ég hef lesið helst til of mikið af ódýrum vísindaskáldsögum (og dýrum) og Stephen King reifurum þessi misseri. Lítið hefur farið fyrir íslenskum bókmenntum, mig minnir að seinasta íslenska bók hafi verið 101 Reykjavík sem ég las fyrir þremur árum eða svo. Ég geri ekki mikið af því að skrifa sögur nú til dags, gerði mikið af því þegar ég var í framhaldsskóla en hætti því svo smátt og smátt.

Re: Endir

í Smásögur fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Tja, ég er ekki viss. Ég byrjaði á þessu þegar rólegt var að gera hjá mér í vinnunni, skrifaði svo og skrifaði þar ég áttaði mig á því hve tíminn hafði flogið og sagan búin. Það er í raun ekkert skipulagt við söguna, hún bara flæddi út. Til að monta mig svolítið tmar, þá vil ég benda þér á sögu sem ég á í korknum sígildar sögur og heitir Nakin ofurmenni :)

Re: Endir

í Smásögur fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Nei, þetta er ekki þýtt úr ensku. Nöfnin í sögunni spann maður nú bara upp þegar kom að þeim. Dagsetning sögunnar á sjálfsagt ekki við rök að styðjast sögulega séð þar sem ég man nú ekki hvenær menn hófu að nýta rafmagn til almenningsnota. Sýslan í Nebraska er sjálfsagt ekki til því hana skáldaði ég upp. Ertu að ýja að því að ég sé ekki höfundur sögunnar NuJack?

Re: Sú var tíð

í Ljóð fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Man einhver hérna eftir þáttunum “Sú var tíð”? snilldar teiknimyndir sem ég góndi á eins og dáleiddur í hverri viku þegar ég var patti :) Fyrstu kynni mín af vísindaskáldsögupælingum.

Re: Lokahelgi Thomsen!!!!

í Danstónlist fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Fellir nokkur tár í minnigu ástkærs skemmtistaðar :')

Re: Hlaupabóla

í Heilsa fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Uss hvað ég var heppinn að klára hlaupabóluna þegar ég var smápatti.

Re: Það er toppurinn að vera lögga

í Ljóð fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Sveiflar stöng og stangar úr tönnum sínum kjötið af fórnarlömbum langar, í meira hvern get ég nú slegið?

Re: Jólaskrautið farið.. loksins

í Hátíðir fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Amm,, gleðilegt nýtt ár, og takið svo niður þetta áhugamál og geymið með jólaskrautinu..

Re: Dagur í lífi vetrar

í Ljóð fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Takk takk, og takk fyrir gagnrýnina í gegnum dagana tmar, tek alltaf mark á henni. Maður reynir að halda sér frá leirnum eftir megni :)

Re: Aldrei að segja aldrei.

í Ljóð fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Tjaaaaa, hvar er ljóðið? :-)

Re: Við Golgötu

í Ljóð fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Bundið mál er mál sem fer eftir ákveðnum hefðum og reglum, svo sem rím, stuðlar höfuðstafir og fleira. Skilgreining þín DaC er ágæt á bundnu en á ekki við. Málið er að innihaldið er jú stærsti hluti ljóðs, en eins og mætur matur sagði. Sorglegt er að sjá fallega hugsun í tötrum. Ljóðið þar ekki að vera rígbundið af reglum, en þær eru gott að nota til að setja upp gott ljóð sem vekur athygli, skýtur í mark. Ég sem oft hreinasta leir en næ nú stundum að koma frá mér góðum kveðskap. Ef fólk hér...

Re: Björt tíð

í Ljóð fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Gott ljóð

Re: Angist sálarinnar.

í Ljóð fyrir 24 árum, 5 mánuðum
hmm, fíla það ekki… Vil taka það fram svo fólk misskilji ekkert að þessi BlackSun á ekki ljóðasíðuna sem er skráð í korkinn “ljóðasíður notenda” heldur ég. Ímeilið mitt neðst á síðunni minni osfrv… Bara koma þessu á framfæri =) kv, Zorglu
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok