Básúnar úti þessi bíll
brunar framhjá
hávær úti þessi skríll
partý rétt hjá

Rokið rúðuna slær
andvaka ég og stúrinn
auminginn þessi ekki fær
að ná sér í stuttan lúrinn



Hvernig á ég að sofa?
því skal ég lofa
sjálfum mér og sver
ef hann ekki fer
blessaði breimandi kattarfjandi
málandi húsvegginn í hlandi
farðu frá fjandans glugganum
ellar endarðu með skó minn
í óæðri endanum!


kveðja, glúbbi.. =o)
—–