Það líður
kyrrð yfir

af enni þínu
falla djúprauðir dropar
þungt niður í götuna

einhvers staðar
innan úr mér
berst bergmál þeirra
til eyrna minna

er byrði mín engu minni en þín?