Visnar vitund mín
svo fýkur með vindinum
og hélar á gluggum sálar
sjón mín og hverfur í ísinn
visnar.

Kulnar í hvítu helvíti
hrímar hörund mitt
brennir frostið burt
burt
og líf mitt
sem deyjandi logi
kulnar.
—–