Já ég er komin með hlaupabóluna, þá virkilega ógeðslegustu sem ég hef á ævinni séð! Ég er ekkert smá lasin greyið, hef td ekkert getað sofið, og mig klæjar alveg óskaplega. Kremið til að bera á bólurnar er ekki til í bænum og ekki vitað hvenær ég mun fá það í hendur, svo ég spyr ykkur kæru lesendur, hvað er gott við hlaupabólukláða? mér var sagt að það væri gott að setja kartöflumjöl, en það virkar bara ekki neitt á mig! Ég er að farast úr kláða og þess vegna gæti ég reynt hvað sem er!

Með fyrirfram þökk

kvkhamlet