Mér finnst þessi saga allt í lagi, en hún skilur ekki mikið eftir sig. Þetta er svolítið eins og að horfa á þátt með friends, ágætt á meðan því stendur en þegar hann er búinn, yppir maður öxlum og gengur í burtu. Til að byrja með langar mig til að biðja þig um að athuga vel hvenær í íslensku er við hæfi að nota ákveðinn greini og hvenær ekki. Mér finnst allt of mikið af nafnorðum með ákveðnum greini, sem þurfa þess ekki. Ágæt regla er að hugsa sem svo, skiptir þessi hlutur, staður osfrv....