Sælir!

Mér fannst framtak Webboy me afbrigðum þannig að ég ákvað að herma eftir.
Ég ætla að stjórna Ravenloft á komandi móti. Ævintýrið er fyrir persónur á 6-9 lvl og er talsvert langt, þannig að þeir sem hafa áhuga á að spila á borðinu mínu mega búast við því að sitja þó nokkuð lengi. Ævintýrið er ekki fyrir viðkvæma, þetta er horror og þar getur ýmislegt gerst. Þar af leiðir er 18+ hjá mér. Ég er ekki byrjendavænn, þe. ég nenni ekki að útskýra reglur og þess háttar fyrir algerum byrjendum en það er í góðu lagi ef að þið hafið aldrei spilað Ravenloft áður, í raun gerið það ævintýrið enn skemmtilegra. Ég er reyki ekki, þarf þar af leiðandi ekki að stoppa á klukkutíma fresti til að hlaupa út, en ef að þið viljið skilja persónur ykkar eftir án umsjónar every now and then, þá er það ykkar ábyrgð(muwhahahaha). Ég kem með allar persónur. Þær persónur sem ég hef búið til eru allar frekar ofnar inn í ævintýrið þannig að ég get ekki gefið grænt ljós á heimatilbúnar persónur, sorry! En ég held að ég geti lofað mjög góðri skemmtan og vonandi smá gæsahúð líka ;)
Áhugasamir, þá er um að gera að muna að skrá sig á borðið þegar þið farið að skrá ykkur á mótið….þeir sem vilja vita eitthvað meira geta haft samband.
Kveðja
Tma