Sverðnérðir

Mig langaði bara að segja ykkur kæru huganördar frá spilaklúbbnum og nördafélaginu Sverðnérði.

Nafninu var ískalt stolið úr nafnatilögum sem við fundum hér á þessari síðu og skömmust við okkur ekkert fyrir ófrumlegheitin.

Sverðnérðir er staðsettur í Ísafirðjabæ(Ísafjörður í skutulsfirði) og var stofnaður snemma á þessu skólaári (Stofnandi er nemadi í Menntaskólanum á Ísafirði og sækir flesta sína meðlimi í þann skóla) og átti hann að kynna spunaspil og aðrar vitsmunalegar skemtanir fyrir þekkingarþyrstum almúganum.

Fyrst var nokkrum sérvöldum Flateyringum boðið að vera með og tóku þeir vel í það og var þá Klúbburinn orðinn að veruleika þegar þeim var kennt að spila Dýflissur og Drekar 3.5 á fyrsta fundi Sverðnérðis. Það gekk afspyrnu vel og skipa þeir nú fyrstu sveit klúbbsins eða Sverðnérðir Alfa, þeir spila nú D&D3.5 einu sinni í viku, alltaf á Mánudögum. Af hverju bara einu sinni þegar stofnandi hugðist hafa tvo fundi á viku?

Það er vegna þess að eftir klúbburinn var auglýstur á sem mest fráhrindandi máta* og Alfa-meðlimir hófu tal á hversu frábært það væri að spunaspila fóru umsóknir í klúbbinn að berast! Varð þá hinn þegar fjölmenni hópur af flateyringum, stækkaður þegar nokkrir ísfirðingar vildu vera með líka. Var þá brugðið á það ráð að skipta hópnum (hann var orðinn 11manns!) og búa til Beta Sveit Sverðnérða. Beta sveitin sem hefur að skipa talsvert yngri hóp (16-17ára og einn 20) spilar því nú alltaf á miðvikudögum.
En enn berast umsóknir og mættu á síðasta fund Beta-sveitarinnar 8manns og því hugar stofnandi á að það að búa til Delta-sveit til viðbótar, sem mun spila á föstudögum.

Sverðnérðir hafa enn sem komið er einungis spilað DnD3.5 en íhugar að láta reyna á GURPS einhvern tíman á næstunni, en þar sem ekki er mikil Gurps iðkun hér fyrir vestan svo við vitum er það meira svona enn á íhugunar stiginu. Klúbburinn spannar nú yfir tug manna/drengja og
er enn að sækja í sig veðrið.

Nú er þessu monti lokið svo gjörið svo vel og byrjið að skjóta.

*(Auglýsingin hljómaði eitthvað á þennan máta:
Ert þú einmanna?
Er þér strítt vegna útlitsgalla þinna?
Ertu útskúfaður vegna slæmra líkamsfnyka?
Ertu laminn af stóru strákunum?
… Kanski af stelpunum líka?

Þá er Sverðnérðir fyrir þig!

(hafðu samband við … blablabla…)
<br><br>Dod : [-=HB=-]Gunsalot
Cs : Gunsalot
bf : Gunsalot
Dod : [-=HB=-]Gunsalot