það er eldur undir, eldur sem um munar, sker í gegnum skorpuna, skaðbrennur eldlilja,

það er eldur undir, eldur sem um munar, rökkur og öskuregn, rís fölur dagur,

það er eldur undir, eldur sem um munar, glóandi hraunstraumur úr hugardjúpum mínum.