ég velti grjóti á milli handanna, ískalt og hornhvasst, ég reif það undan grárri ábreiðu mosa, ískalt og egghvasst, fyrir löngu rann hér hraun, logandi heitt úr iðrum jarðar en skildi síðan eftir sig þetta grjót, ískalt og oddhvasst.

eins og hjarta mitt.