Við erum bara ekki að tala um hvað gerist eftir meðgöngu, heldur um þann tíma sem fóstrið er inni í konunni. Og þá er, og/eða ætti að vera, réttur konunnar alger, og réttur karlsins enginn, þar sem það er um líkama konunnar að ræða (eins og lhg nefnir). Og ég vil fá að taka undir það sem aðrir hafa sagt, nefnilega að auðvitað eigi ekki að fara með fóstureyðingar sem hverja aðra “getnaðarvörn” (dáldið erfitt að verjast getnaði þegar hann hefur átt sér stað, en mér hugkvæmist ekkert betra...