BANDARÍKIN KREFJAST AÐ VERÐA UNDANÞEGIN STRÍÐSGLÆPADÓMSTÓLUM OG ALÞJÓÐLEGUM DÓMSTÓLUM- Já, krefjast þess nú að mega ein verða undanþegin allri refsingu fyrir glæpi í stríðum. Þetta er ekki grín, sumt heimskulegt er satt, Bush er heldur ekki bara brandari, en þetta…..Vá!…( sjáðu bara http://www.amnesty.org )

Bandaríkin, sem ég er annars alltaf tilbúin að verja, enda þoli ég ekki þetta röklausa og heimskulega hatur margra hér á landi á þeim, eru að því er virðist að fara algjörlega yfir strikið, algjörlega að verða galin, og vilja nú að allir Bandarískir þegnar verði undanþegnir stríðsglæpastólum og alþjóðlegum dómstólum!
Já, akkurat þetta eru þeir að fara fram á akkurat núna og það gæti ræst!
Hvaða, hvaða, bara komin einhver alheims aðalsmannastétt sem á að njóta sjálfsagðra sérréttinda, eins og að mega myrða og drepa að vild, og fremja hvaða stríðsglæpi sem er án refsingar?
Ég vissi að eitthvað myndi versna þegar þessi maður þarna varð forseti, en ég bjóst ekki við þessu.
Ef þú villt ekki að Bandaríkjamenn fái að fremja fjöldamorð og annað í framtíðinni eins og þeir vilja, án þess að vera refsað, ef þessi tillaga um að þeir verði undanþegnir alþjóðlegum dómstólum nær fram að ganga, Guð forði okkur frá því!, þá farðu núna á http://www.amnesty.org og skrifaðu undir gegn þessum grillum þeirra um að þeir einir eigi að fá að gera allt án refsingar, sem þeir eru núna að reyna að fá heimsbyggðina til að samþykkja.


Þetta er tilkynningin frá Amnesty:
The new system of international justice, which came about with the creation of the International Criminal Court (ICC), is under attack. The USA is trying to ensure that US nationals are exempt from ICC jurisdiction over genocide, crimes against humanity and war crimes.

Farðu endilega NÚNA inn á http://www.amnesty.org og skrifaðu undir, þú finnur þetta alveg fyrst á síðunni. Flýttu þér því þessi undirskriftalisti verður ekki þarna að eilífu.
Ef samviska þín segir þér að það sé ekki réttlátt að Bandaríkjamenn einir megi í framtíðinni sleppa algjörlega við alþjóðlega dómstóla, stríðsglæpadómstóla og jafnvel alla refsingu yfirhöfuð, eins og tillagan sem þeir eru að reyna að fá samþykkta í heiminum fer fram á, og jafnvel sem sagt fremja refsingalaus fjöldamorð að villd, já til dæmis drepa okkur öll ef þeim litist svo á, segjum að brjálæðingur kæmist þar til valda (veit að það hljómar fáránlega, en samt). Ef þér finnst ekki réttlátt að Bandaríkin ein veðri undanþegin allri refsingu í heiminum, og megi ein gera allt sem þeim sýnist, eins og þau eru að reyna að koma í alþjóðalög, farðu þá núna, allra vegna og þinnar eigin samvisku,
og skrifaðu undir gegn þessari heimsku og þessari hættu.

Þúsund þakkir. TS. Kíktu á þetta hjá þeim núna.
http://www.amnesty.org