Nei, ég held nú að það sé bara þjóðsaga. Háskólinn fær þennan hluta af sköttunum sem annars færu til trúfélaga og ráðstafar að vild, eða svo hef ég heyrt. Hins vegar borga allir, sem á annað borð borga skatt, laun starfsmanna Þjóðkirkjunnar. Það skiptir engu máli þótt þeir séu utan trúfélaga eða í öðru trúfélagi. Prestar, djáknar, biskupar og svo framvegis eru nefnilega opinberir starfsmenn - starfsmenn ríkisins - og fá því laun úr sama sjóð og aðrir starfmenn ríkisins.