Öðru hverju koma hér inn beiðnir um rómantískar hugmyndir, vangaveltur um hvað sé rómantík og hvað maður geti nú gert. Mig langar til að deila með ykkur nokkrum af mínum hugmyndum, þær eru misdýrar og þarf að hafa mismikið fyrir þeim, en vonandi er hérna eitthvað fyrir alla.
Svo ef þið komið með einhver comment, komið nú með ykkar hugmyndir í leiðinni.

Ljósatími. Bjóddu henni í ljósatíma á ljósastofu sem er með heitan pott og/eða jafnvel nudd líka á sama staðnum. Farðu á staðinn þegar þú pantar tímann og biddu afgreiðslustúlkuna/manninn að setja þennan bangsa sem heldur á rós eða konfekti inn í bekkinn hennar áður en þið fáið að fara inn. Þá situr bangsinn á bekknum hennar þegar hún fer í ljós og á meðan hún liggur á bekknum að verða brún og sæt hugsar hún hvað þú sért nú mikill dreamy gæji og getur ekki beðið eftir að hitta þig. Svo eftir á farið þið í nudd, eða í pottinn eða eitthvað annað.

Þessa hugmynd má líka útfæra á aðra hætti. Td ef þið farið út að borða að þegar þú pantar borðið biður þú þjóninn að sjá til þess að gjöfin bíði á borðinu, að hringurinn/hálsmenið verði á aðalréttardiskinum þegar þið fáið hann eða annað í þeim dúr.

Bjóddu henni í útsýnisflug yfir Reykjavík, Þingvelli og nágrenni. Klukkutíminn er ekki svo dýr. Þið eruð þá tvö ein með flugmanninum. Í flugvélinni er tilvalið að opna kampavínsflösku og jafnvel hafa osta eða annað til að narta í á meðan. Pottþétt rómantík í þessu.

Sumarhugmynd, jafnvel eftir útsýnisflugið. Farið niður á strönd þar sem vinur þinn hefur rétt áður en þið komuð, sett teppi á ströndina og dreift úr nestinu og kampavíninu/víninu sem þú útbjóst… þá sitjið þið þarna tvö ein á ströndinni að kvöldlagi, drekkið ykkar vín og borðið eitthvað létt og rómantískt. Með punktinn yfir i-ið geturu leigt söngvara (tenór) til að koma um kvöldið og syngja yfir ykkur 2-3 lög. Kostar yfirleitt 5 þús kall.

Þessi klassíska… kaupir tvö búnt af rósum, rífur blöðin af þeim flestum og dreyfir um allt herbergið og rúmið. Skilur þó eftir örfáar sem þú dreyfir líka um. Kaupir svona lyktarolíu, blandar hana frekar dauft svo það verði bara smá keimur af lykt, kveikir á bööööns af kertum og hefur rómantískan CD í spilaranum. Hvað þið svo gerið er up to you.. spilið saman fyrst, langur foreplay, spjallið saman yfir víni eða annað

Fyrir utan að rómantík er að koma heim með blómvönd, langt og innilegt knús, ljóð eða eitthvað annað sem þú sjálf/ur hefur búið til.


Glöggir hafa tekið eftir því að ég tala lang mest til strákanna fyrir kærustunar þeirra.. en að sjálfsögðu á þetta við bæði kynin…