Jæjja nú er komið að því erfiðasta í sambandi að mínu mati… að foreldrar mínir, og foreldrar kærustunnar hittast… Við erum búin að vera saman í næstum ár og foreldrar okkar hafa aldrey hist!

Jahh það sem við vorum að spá í að gera er að bjóða þeim í matarboð þar sem við eldum =) sem sagt bjóða foreldrum okkar í mat. Við erum með bílskúr (sem er næstum íbúðin okkar því við erum þar svo oft) elda bara eitthvað flott þar og bjóða þeim þangað. Veit ekki… kannski er þetta fáranleg hugmynd… en gæti sammt endað vel… hver veit.

Einhverjar hugmyndir hvernig þetta mundi enda??