Ok, upphaflega voru bækurnar ætlaðar sem barnabækur, og jú, ég viðurkenni að bækurnar hafa breyst og falla ekki endilega undir Barnabókmentir lengur. En það er eitt að lesa/hlusta á bækur og annað að horfa á bíómynd. Börnin hlusta á söguna og sjá fyrir sér það sem þau vilja, en svo sjá þau myndina og líkt og hjá okkur, er hún ekki alveg eins og þau ímynduðu sér. En þætti ykkur ekki ósanngjarnt að útiloka þau frá myndunum þar sem þær væru of hræðilegar fyrir þau. Ég veit að ég hefði orðið sár...