Sammála, mér hefur aldrei fundist hann passa. Ég hef alltaf ímyndað mér Johnny Depp í hlutverkinu. Það er ekkert mál að láta hann líta svolítið klikkaðan út, og þótt hann sé bandarískur, á hann ekki í neinum vandræðum með að tala með breskum hreim. Sönnun: Hann talaði skosku í Finding Neverland, og það getur enginn neitað því að hann hefur leikið í þokkalega mörgum myndum þar sem karakterinn hans er hálf brjálaður.