Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Úrslit og fleira (5 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum
Úrslitin úr Spunakeppninni: Það geta svosem allir skoðað eldri kannanir og séð þetta, en svo við gerum þetta nú svolítið opinbert, þá eru hérna úrslitin: 1. One last time eftir Sabbath með 40% atkvæða 2. To Fred eftir Tzipporah með 32% atkvæða 3. Behind blue eyes eftir Catium, Loforðið eftir sif666 og Áframhald eftir Greenbucket5 allar með 5% atkvæða 4. Leading a life eftir arazta með 4% Ég vil óska öllum til hamingju með sögurnar og þakka góða þáttöku. Mig langar að nota tækifærið og spyrja...

Spunakeppni - Kosning (0 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum
Jæja nú er keppninni lokið og þáttakan verð ég að viðurkenna fór fram úr mínum vonum, sem er að sjálfsögðu frábært :) Nú er í gangi skoðanakönnun sem gildir sem kosning um hvaða saga vinnur. Úrslitin sjást auðvitað auðveldlega með því, en ég mun samt tilkynna eftir viku hvernig þær raðast í sæti. Sögurnar voru allar frábærar og ég þakka enn og aftur öllum sem tóku þátt. Gangi ykkur vel í kosningunni og endilega allir að kjósa :)

Lokadagur spunakeppninnar (3 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum
Eins og auglýst var í upphafi keppninnar lýkur henni á páskadag, 12. apríl. Þótt ekki hafi borist nema tvær sögur ennþá, ætla ég að halda þeirri dagsetningu inni, sem þýðir að sögur sendar inn eftir 23:59 á páskadag fá ekki að taka þátt, nema höfundur hafi haft samband við mig fyrir þann tíma og beðið um frest. Þar fyrir utan vona ég að allir njóti hátíðarinnar og óska öllum gleðilegra páska :)

Jæja fólk... (13 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum
Eins og segjir í fyrri tilkynningu, þá rennur fresturinn til að senda inn sögu í spunakepnina út eftir rétt rúma viku. Það er komin inn ein saga, sem ég verð að viðurkenna að mér finnst dálítið sorgleg þátttaka. Þeir sem ætla að vera með, endilega farið að drífa í að senda inn, eða sendið mér skilaboð og biðjið um frest ef þess þarf. Ég framlengi ekki nema um það sé beðið og ef það verða ekki komnar fleiri sögur þann 12 og engar beiðnir um frest, lýkur keppninni og Tzipporah vinnur...

Spunasamkepni (17 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum, 1 mánuði
Jæja, þar sem triviunni er lokið er komið að næstu keppni, s.s. spunasamkeppni. Reglurnar eru eftirfarandi: 1. Spuninn á að fjalla um fyrstu misserin (minnst vika, mest 1 ár) eftir að stríðinu lýkur í lok 7. bókarinnar, frá sjónarhorni einnar eða fleiri af eftirtöldum persónum: Harry Potter, Hermione Granger, hver sem er úr Weasley fjölskylduni, Draco Malfoy, Andromeda Tonks og Kingsley Shacklebolt. 2. Spuninn má vera annað hvort á íslensku eða ensku. 3. Minnsta lagi 1000 orð, mesta lagi...

Gleðileg Jól (0 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Fyrir hönd okkar stjórnenda Harry Potter áhugamálsins, óska ég öllum notendum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Ég vona að þið njótið dagsins. Kveðja, Stjórnendur Harry Potte

Októbertölur (0 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Áhugamálið okkar lennti í 37. sæti í októbermánuði og hækkaði um hvorki meira nér minna en 10 sæti sem hlýtur nú að teljast frekar góður árangur. Nú er um að gera að halda þessu að minnsta kosti, og helst ná að hækka ennþá meira. Topp 5 listinn lítur svona út: 1. forsida (stendur í stað) 2. humor (upp um 1 sæti) 3. tilveran (niður um 1 sæti) 4. kynlif (stendur í stað) 5. hl (upp um 2 sæti)

Trivian! (2 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Jæja, þar sem þáttakan so far í nýju triviunni er frekar sorgleg ákváðum við að búa til smá tilkynningu til að reyna að fanga athygli og vonandi áhuga ykkar. Trivian er hérna aðeins neðar, endilega takið þátt og hjálpið okkur við að endurlífga áhugamálið aðeins. Stjórnendur /hp.

Septembertölur (1 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum, 6 mánuðum
/hp var í 47. sæti í september, og færðist því niður um 8 sæti síðan í ágúst, sem verður að teljast frekar sorglegt miðað við að við færðumst upp um 7 síðast. En við getum vonað að við færumst upp næst þar sem bannerkeppnin hefur vonandi dregið fólk hingað oftar :) Topp 5 listinn lítur svona út: 1. forsida (stendur í stað) 2. tilveran (upp um 2 sæti) 3. humor (niður um 1 sæti) 4. kynlif (upp um 1 sæti) 5. ego (upp um 1 sæti)

Stjórnandi óskast (36 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Jæja, þar sem Gulla hefur ekki hugsað sér að halda áfram hérna og BudIcer hefur nú ekki gert sérstaklega mikið undanfarna mánuði, óska ég hérmeð eftir stjórnanda til að sjá um /hp með mér. Umsóknina finnið þið hér: http://www.hugi.is/hugi/bigboxes.php?box_type=adminumsokn Endilega sækið um, vona að ég fái einhvern góðan með mér í þetta :)

Úrslit í bannerkeppninni (4 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Jæja, þá eru úrslitin orðin ljós, og þau skiptust svona: 1. sæti: asteroids - 29% athvæða 2. sæti: Xliptic - 24% athvæða 3. - 4. sæti: Rosebud og Greenbucket5 - 13% athvæða hvor Athvæði greiddu 68 og óska ég þeim sem fengu flest atvhæði til hamingju. Banner asteroids ætti að birtast hér á síðunni sem fyrst.

Ágúst tölur (2 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Jahérna, ég var búin að steingleyma þessu og biðst innilegrar afsökunar á því. Júlí tölurnar komu mjög seint og það var lítil breyting frá júní, svo ég læt það vera að koma með þær tölur hér og vona að ykkur sé sama. Tölurnar fyrir september eru ekki komnar, svo ég set þær inn um leið og þær koma sem ég vona að verði fljótlega. En hér eru tölurnar fyrir ágúst: /hp var í 39. sæti og færðist upp um hvorki meira né minna en 7 sæti sem mér finnst nottlega bara frábært. Einu áhugamálin sem falla...

Úrslit í smásagnakeppni, kosning í bannerkeppni (0 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Jæja, úrslitin í smásögukeppninni urðu þessi: Í fyrsta sæti var sagan On the Crest of the Hill eftir Weasley og fékk hún 45% atkvæða. Í öðru sæti með 36% atkvæða var sagan Þetta er í þeirra höndum eftir Greenbucket5. Og í þriðjasæti með 18% atkvæða var Decorating eftir Achilles. Ekki komu fleiri sögur inn í þetta skiptið en 22 greiddu atkvæði. Ég leyfi mér þó að vonast eftir betri þáttöku bæði í keppni og kosningu verði ein slík auglýst aftur. En þá að bannerkeppninni sem fékk mun meiri...

Smásagnakeppnin, kosning (2 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Jæja, ætli sé ekki kominn tími á einhver úrslit í þessari keppni sem við héldum í vor. Ástæðan fyrir töfinni er sú að við Gulla vorum alltaf að vonast eftir að einhverjir fleiri myndu senda inn, en svo varð ekki. Gulla ætlaði svo að sjá um að ganga frá þessu, en svo hef ég bara ekkert heyrt frá henni í LANGAN tíma, svo nú tek ég þetta bara í mínar hendur. Setti einfaldlega inn skoðanakönnun og læt hana standa í u.þ.b. viku og tilkynni þá úrslitin. Verið endilega dugleg að kjósa og höfundar,...

Tilkynning í sambandi við bannerkeppnina (4 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Finnst rétt að láta vita af því að notandinn ToBoNo hefur verið útilokaður frá keppni og framlögum hanns eytt þar sem upp komst um ritstuld af hanns hálfu, að minnsta kosti hvað varðar annan bannerinn hanns. Svona framkoma verður ekki liðin og komist upp um fleiri svona atvik, verða afleiðingarnar þær sömu.

Bannerkeppni (10 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Þar sem mikill áhugi virðist vera fyrir bannerkeppni er eins gott að koma sér bara í að setja hana í gang :D Þannig að, endilega komið ykkur að verki og sendið inn hugmyndir á myndakubbinn. Merkið Bannerana ykkar, annað hvort með nicki eða einhvern veginn öðruvísi, og ef þið sendið fleiri en einn, merkið þá með númerum líka (nr.1, nr.2, nr.3 o.s.frv). Skilafrestur er til 30. september og þá set ég upp könnun sem gerir út um úrsltin. Gangi ykkur vel. Bætt við 17. ágúst 2008 - 23:52 Afsakið,...

Júní tölur (loksins) (8 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Jæja, þetta lagaðist nú eitthvað milli mánaða :P /hp var í 45. sæti eftir júnímánuð og hækkaði því um 8 sæti milli mánaða. Topp fimm listinn lítur svona út: 1. forsida (stendur í stað) 2. hl (stendur í stað) 3. kynlif (stendur í stað) 4. ego (stendur í stað) 5. humor (upp um 1 sæti) Ég biðst afsökunar á töfinni á þessum tölum, en sökin er ekki mín eða annarra stjórnenda hér, listinn var einfaldlega ekki uppfærður fyrr :)

Maítölur... (9 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Jæja… /hp er komið niður í 53. sætið. Vorum í 52. sæti í síðasta mánuði, svo þetta er nú ekki mikið fall, en þarsíðast vorum við að mig minnir í 38. svo það er svolítið sorglegt. Topp fimm eru: 1. forsida (stendur í stað) 2. hl (stendur í stað) 3. kynlif (stendur í stað) 4. ego (nýtt á lista) 5. hljodfaeri (niður um 1 sæti) En allavegana, hafið þið einhverjar hugmyndir um hvernig má endurvekja áhugamálið eru þær vel þegnar þar sem spunakeppnin augljóslega gerði ekki mikið gagn.

Smásagnakeppni (10 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 1 mánuði
Jæja, ég var að hugsa um að gera kannski eitthvað af viti hérna og athuga hvort áhugi væri fyrir smásagnakeppni. Var jafnvel að hugsa um að gera þetta að reglulegu dæmi ef þið hafið áhuga. Ætla nú að byrja á því að sjá hvað ykkur finnst og ef það er áhugi, set ég inn nýja tilkynningu með reglum, þema og öðru. Svo endilega segið mér hvað ykkur finnst :)

Janúartölur (8 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Samkvæmt tölum um flettingar í janúarmánuði, situr /hp í 32. sæti með 28.757 flettingar, eða um 0,62% af heildarflettingum huga.

Spoiler viðvaranir (5 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Þar sem það eru nú komnir nokkrir mánuðir frá útgáfu 7. bókarinnar á íslensku, og enn fleiri síðan hún kom út á ensku, mun ég ekki eyða korkum, greinum og öðru tengt bókinni sé þetta ekki merkt með spoiler viðvörun. Þið megið að sjálfsögðu merkja þetta, en ég held að stærsti hluti þeirra sem stunda áhugamálið séu það harðir aðdáendur að þeir hljóta að hafa lokið við að lesa allar bækurnar. En sem sagt óþarfi að merkja allt með spoiler lengur ;)

Úrslit smásagnasamkepninnar. (9 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Þar sem ég átti ekki upptökin að samkepninni, er ég ekki alveg örugg með það hvernig ég á að snúa mér í þessu, en ég held og vona að þetta sé rétta leiðin. En semsagt, úrslitin eru þessi: Í fyrsta sæti var ‘Hreysikattaást’ eftir Evans Í öðru sæti var ‘Bæn mín ein er’ eftir Gulla369Griz Í því þriðja var svo ‘Að dreyma um hvít jól’ eftir Catium Ég vil hér með óska öllum þáttakendum til hamingju með góðar sögur og hvet sem flesta til að halda áfram að skrifa. Í framhaldi af því langar mig að...

Nýr stjórnandi (10 álit)

í Harry Potter fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Sæl verið þið. Eins og einhverjir hafa líklega tekið eftir, er fantasía hætt sem stjórnandi. Ég viðurkenni að ég hef ekki verið neitt sérstaklega active hérna undanfarið, en ég ætla að reyna að breyta því eitthvað. Ég er ekki þannig manneskja að ég taki að mér starf og vinni það illa. Höndli ég það ekki, segi ég upp. Mig langar samt að biðja ykkur að gefa mér séns áður en þið farið að dæma. Ætla ekki að gera neinar stórar breytingar til að byrja með, og sjá svo til. Hef einhverjar hugmyndir...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok