Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Hefur Harry Potter glatað töframættinum? (9 álit)

í Harry Potter fyrir 14 árum, 9 mánuðum
Mig langaði bara að benda á þessa grein: http://movies.msn.com/mom-pop-culture/harry-potter-lost-magic/story/?GT1=28101&silentchk=1& ágætis pælingar þarna bæði um bækurnar og myndirnar. Vel skrifuð grein í alla staði :)

Svona fyrst dagurinn er ekki úti enn... (5 álit)

í Harry Potter fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Spurning hvort fólk sé ekki að átta sig á því eða hvort fólki sé bara almennt orðið sama þessa hluti. En mér finnst samt allt í lagi að benda á að dagurinn í dag er afmælisdagur bæði J.K. Rowling, sem er 43 ára í dag, og Harrys, sem eins og flestir vita líklega, er þá 28 ára :) Bætt við 31. júlí 2008 - 23:25 … og að sjálfsögðu tókst mér að gera villu. Það vantaði smáorðið um þarna í efstu línuna á milli orðanna sama og þessa… (og þetta hljómar skemmtilega formlegt…)

Hjálp (7 álit)

í Tölvur og tækni (gamla) fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Ok, veit ekki hvort einhver getur hjálpað mér, en ég er búin að reyna allt sem mér (og pabba) dettur í hug og þetta er þess virði að reyna. Málið er að diskadrifið í tölvunni minni ákvað allt í einu að klikka. Hvarf hreinlega, fundum það hvergi nema í device manager, en þar segir í device status að það sé ekkert athugavert við neitt. Í fyrstu skiptin sem þetta gerðist var nóg að fara í RUN og láta tölvuna gera einhversskonar diskcheck þegar ég restartaði. En nú virkar það ekki lengur og við...

Nemo Litli (18 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Ég var að hugsa… það virðast allir hérna dýrka þessa mynd… sá á amazon.com að hún er til á dvd, væri ekki hægt að bú a til undirskriftalista eða eitthvað og senda til senu (eða annarra útgefenda) og sjá hvort þeir séu til í að gefa þetta út hér, þá á íslensku líka? Langar bara að sjá hvað fólki finst.

Könnunin (2 álit)

í Ísfólkið fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Ekki að ég sé að kvarta, ágætis könnun… Langaði bara að benda á að þótt maður skírði barn nafni úr bókunum, þyrfti það ekki endilega að vera í höfuðið á ísfólkspersónu, mörg af þessum nöfnum eru fullkomlega eðlileg og nokkuð algeng. Samt, eins og ég sagði, ágætis könnun.

Pæling (0 álit)

í Teiknimyndir fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Bara að velta aðeins fyrir mér, væri ekki hægt að senda undirskriftalista á RÚV og Stöð 2 og biðja um að þeir sýni aftur þætti eins og Zelda, Heiða, Bangsi bestaskinn og fleiri þætti? Bara pæling….

Ambáttin (11 álit)

í Bækur fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Mig langar að hvetja sem flesta til að lesa ambáttina eftir Mende Nazer og Damien Lewis. Þetta er ótrúleg frásögn og vekur mann svo sannarlega til umhugsuna

Vampírur? (8 álit)

í The Sims fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Ég er búin að velta þessu fyrir mér soldinn tíma, hvernig býf maður til Vampíru?

Spurning (6 álit)

í Teiknimyndir fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Er það bara vitleysa í mér, eða átti að fara að gera leikna mynd um Tinna?

Könnunin (21 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Er enginn sammála mér í því að það væri einum of klisjukennt ef Sirius kæmi aftur? Ég meina gaurinn er dauður hvort sem það gerðist á eðlilegan hátt eða ekki og maður snýr ekki aftur frá dauðum. Hann var uppáhaldspersónan mín og er enn þótt hann sé dáinn, en ég sætti mig samt við það. Held ég yrði ekki ánægð með næstu bók ef hann birtist allt í eninu aftur á lífi.

Spurning (5 álit)

í Söngvakeppnir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Er einhversstaðar til síða þar sem hægt er að hlusta á öll íslenskulögin sem hafa tekið þátt?

Könnunin (12 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég get ekki sagt að mér finnist myndirnar skemma bækurnar, en það má segja að þær sýni þær ekki alveg í réttu ljósi. Myndirnar eru ágætar sem slíkar, en þær hafa ekki sömu dýpt og bækurnar. Leikstjórarnir mættu líka leggja meira uppúr að koma leikurunum inn í karakterana. Endilega segið ykkar álit.

Spurning (2 álit)

í Heilsa fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég vandi mig á það fyrir nokkrum árum að fara frekar seint að sofa (ekki mjög gáfulegt, en….). Síðustu ár hefur 6 - 7 tíma svefn verið nóg fyrir mig. En nú skyndilega er ég bara búin klukkan svona 10 á kvöldin. Alla síðustu viku hef ég sofnað frekar snemma, en samt hef ég bara ekki orku til að endast allan daginn. Ég hef ekki breytt neitt mínum lífsstíl nýlega og ekki verið að gera neitt nýtt eða öðruvísi. Er þetta eitthvað sem ég ætti að hafa áhyggjur af?

Spurning (0 álit)

í Klassík fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Ég var að velta því fyrir mérhvort einhver vissi um góða blandaða kóra á íslandi. Þá á ég ekki við skóla eða kirkjukóra, heldur bara kóra yfirleitt?

Hjálp (7 álit)

í Netið fyrir 19 árum
Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver gæi hugsanlega hjálpað mér aðeins, en þannig er að tæknideildin í skólanum mínum álvað að loka fyrir msn innan skólans með þeim afleiðingum að sumir komast inná en ekki allir. Ég er ein af þeim sem kemst ekki og þykir það frekar fúlt. Msn truflar mig ekkert við námið, en mér finnst hentugt að gea spjallað við einhvern á meðan ég læri. Ef einhver hefur hugmynd um hvernig á að komast framhjá lokuninni eða eitthvað í þá áttina, vilkiði hjápa mér?

Könnunin.... (3 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 2 mánuðum
vantar mögleikann “fer eftir ýmsu”. að mínu mati fer það eftir því hvernig sjöunda bókin endar hvort ég myndi vilja fleiri bækur…. eruð þið ekki sammála?

MK (1 álit)

í Skóli fyrir 19 árum, 4 mánuðum
getur einhver sagt mér frá mk? er að skipta um skóla og langar að vita meira um hann. vill einhver hjálpa?

hvað finnst ykkur? (15 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég hef verið að velta þessu fyrir mér, en hvað finnst ykkur um leikaravalið í 3. myndinni. þá á ég við sérstaklega þá sem leika Sirius og Lupin. Lupin fannst mér í lagi, en mér finnst Gary Oldman ekki passa sem Sirius. Sá sem ég hefði viljað sjá í þessu hlutverki er Johnny Depp. Ég er ekki stór fan eða neitt svoleiðis, me´r finnst hann bara fullkominn í þetta hlutverk…..Hver er ykkar skoðun?

40 vikur (1 álit)

í Bækur fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Mér datt í hug þegar ég sá nýjustu könnunina hérna að ég hafði aldrei séð kork um bókina 40 vikur, sem er by the way ein besta unglingabók sem ég hef lesið. Ég er ekki mikið fyrir unglingabækur, og hef aldrei verið, en þessi bók heillaði mig algjörlega. Ég held ég hafi lesið hana að minnsta kosti 4 sinnum, örugglega oftar samt, en ástæðan fyir því að mér líkar svona vel við þessa bók er sú að höfundurinn, Ragnheiður Gestsdóttir (minnir mig allavegana),lýsir bæði tilfinningum og atvikum svo...

ríki ljóssins (0 álit)

í Bækur fyrir 19 árum, 6 mánuðum
það voru bara 13 bækur gfnar út á íslensku í þessum bókaflokki. svekkjandi finnst þér ekki? ég varð geðveikt fúl. en nú er verið að berjast fyrir að fá þær þýddar. held samt að það gangi ekki svo vel, en það má vona. því miður veit ég ekkert um internet bókasölur…..

ríki ljóssins (3 álit)

í Bækur fyrir 19 árum, 6 mánuðum
veit einhver hvernig gengur með að fá efganginn af ríki ljóssins gefið út?

mæli með.... (0 álit)

í Bækur fyrir 19 árum, 7 mánuðum
ef þu hefur ekki þegar lesið hana bendi ég þér á 40 vikur eftir Ragnheiði Gestsdóttir. hún er kanski ekki beint sorgleg, en hún er alveg æðisleg. mæli innilega með henni við alla.

FFIX (4 álit)

í Final Fantasy fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Vantar einhvern að losna við FFIX fyrir ps1??? Er tilí að borga eitthvað smá, en ekki mikið. Ef svo óliklega vill til að einhver vilji losna við fyrsta diskinn bara, væri það ekki verra, ég á hina….

I love Legolas!!!!!

Hugmynd (1 álit)

í Fræga fólkið fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Hvernig væri að hafa svona afmælisdagbók fræga fólksins einhversstaðar uppi á síðunni. Það eru margir sem hafa áhuga á þessu (held ég alla vegana). En þetta er bara hugmynd….

I love Legolas!!!!!

Barnapössun (0 álit)

í Börnin okkar fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Halló, ég er 17 að verða 18 ára, hef mjög gaman af börnum og væri til í að passa börn á öllum aldr, sérstaklega svona um helgar og svona. Ég er á bíl, svo það er ekki vandamál. Ég tek ekki mikið á tímann, hef farið á Rauðakrossnámskeið, reyki ekki, og er yfirleitt laus. Ef einhver hefur áhuga eða vill meiri upplýsingar, endilega sendið mér póst. Kv. Svana

I love Legolas!!!!!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok