ég skellti mér á þessa mynd með nokkrum vinum og á heildina litið fannst mér hún mjög góð…reyndar voru nokkur smá atriði sem að fara mjög í taugarnar á mér:
Það sem að kemur hér á eftir er spoiler! ekki lesa nema að þú viljir skemma fyrir þér!




Sko…Kjóllinn hennar Hermoine á að vera BLÁR ekki bleikur! Og hvar var Vinky? mér finnst það mikilvægt að sonur Crouch hafi verið á leikunum og stolið sprotanum hans Harry. Og fyrst minnst er á Crouch, átti Barty junior ekki að vera ljóshærður? ég sá hann alltaf fyrir mér sem skíthræddan unglingsstrák með heilastarfsemina eitthvað bilaða!
Og Dumbledore! Hann á ékkert að vera svona reiður er það? las ég kannski ekki bókina nógu vel? Svo finnst mér líka vanta þarna S.Á.R(S.P.E.W) til verndar álfanna…reyndar hefði það ekki passað neitt inní, en fannst það samt vanta. Og svo..HVAR VORU HVELLFÆTLURNAR? þær skipta máli,komu meira að segja í völundarhúsinu! og hvar var risa köngulóin, snfixinn, up-side down þokan og vitsugan? og hvað varð um það að Rita Skeeter var hamskiptingur? og það sem að mér finnst skipta einna mestu máli: Hvar var Sirius Black? hann kemur mikið fyrir í bókunum og næstu bók og er mikilvægur karakter sem að á ekki að sleppa úr!

En utan við þessi smáatriði fannst mér myndin spennandi og vel heppnuð og ég hló og grét til skiptis =)