Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Nemo Litli

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
hehe, of ung/ungur kannski? Nei. þetta er ekki Finding Nemo, vona að þú skoðir bara linkinn hérna fyrir ofan ;)

Re: Nemo Litli

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Nei, þessvegna vil ég ekki kaupa hana á amazon, heldur láta endurútgefa hana hér heima, með gömlu íslensku talsetningunni, sem er frábær.

Re: Hrekkjavakan

í Harry Potter fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég myndi ekki segja að þetta væri sorgardagur. frekar svona “bittersweet”. auðvitað sorglegt að Lily og James dóu, en Voldemort hvarf líka á sama tíma. Er samt sammála nokkrum hugurum. Full langt gengið að tala um þetta eins og þetta sé raunverulegur atburður. allt í lagi samt að minnast á þetta og ræða það…

Re: Halloween pæling

í Harry Potter fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Tæknilega séð þekkti hann aldrei foreldra sína. Hefði hann þekkt þau, liði honum væntanlega ver. Held það sé svolítið erfitt að eyða svo “hamingjusömum” degi í sorg yfir einhverjum sem maður man ekki eftir.

Re: Könnunin

í Ísfólkið fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég líka, hefði samt mátt orða það öðruvísi…

Re: Hvenær byrjaðir þú að lesa bækurnar?

í Ísfólkið fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég las þetta svona 12-13 ára….('99-'00)

Re: hversu vel þekkirðu LOTR?

í Tolkien fyrir 19 árum, 7 mánuðum
23 rétt, nokkuð sátt bara…

Re: Nú er komið nóg

í Ísfólkið fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Held að Móri og Taran berjist um hylli mína….

Re: Vákar

í Harry Potter fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ef þú átt við áður en að Cedric dó, vegna þess að Harry var viðstaddur þegar foreldrar hans dóu, þá minnir mig að hann hafi verið of ungur til að átta sig á hvað hafði gerst og þar af leiðandi ekki séð þá fyrr.

Re: Könnunin

í Harry Potter fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ekki ef fólk sameinast um að halda því gangandi…..

Re: Hvað er verið að lesa?

í Bækur fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxnes. Get ekki sagt að ég sé spent yfir henni….

Re: Nýjar myndir úr Harry Potter og Fönixreglunni

í Harry Potter fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Gæti ekki orðað það betur sjálf.

Re: Nýjar myndir úr Harry Potter og Fönixreglunni

í Harry Potter fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ja, hún hlýtur allavegana að hafa eitthvað um þetta að segja.

Re: Mynd 5

í Harry Potter fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ok, ég viðurkenni að klippingin er slæm, en hey, come on, myndin verður ekki frumsýnd fyrr en næsta sumar, hvernig væri að dæma myndina eftir það og kannski sleppa því að láta smáatriði eins og þetta fara í taugarnar á sér?

Re: Nýjar myndir úr Harry Potter og Fönixreglunni

í Harry Potter fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Veistu, ég er svo sammála þér! Ég þoli ekki þessa endalausu gagnrýni á 4. myndina svo dæmi sé tekið. Hún var fín! Ekki fullkomin, enda væri það ómögulegt, en hún var ekkert slæm. Og þegar einhver fór að kvarta yfir að kjóllinn hennar Hermionie hafi verið bleikur en ekki blár eins og í bókinni fékk ég nóg. Anyway, það þýðir ekkert að vera með neina smámunasemi, og mér þætti gaman að sjá marga af þeim sem kvarta mest gera betur!

Re: 4.bókin

í Ísfólkið fyrir 19 árum, 8 mánuðum
hehe, svona er lífið, fólk er alltaf að deyja. en trúðu mér, þetta er ekki sú sorglegasta.

Re: Þengill hinn góði

í Ísfólkið fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ertu viss um að þetta sé Þengill? Hann er með blá augu og ég sé ekki betur en manneskjan fyrir framan hann sé með gul augu…. Passar ekki alveg ef þetta á að vera Þengill.

Re: Var að spá

í Harry Potter fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Ef ég man rétt er Egils Malt u.þ.b. 0,3% áfengi eða eitthvað í þá áttina. Það er ómögulegt að verða fullur af því þar sem þú þarft að drekka nokkur baðkör af þessu til að fara að finna á þér, og það er meira heldur en líkaminn getur haldið. Ekkert til að hafa áhyggjur af semsagt.

Re: Ísfólkið – áhrif bókanna

í Ísfólkið fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Ég hef aldrei skilið fólk sem ekki getur rætt trúmál eins og stjórnmál, en hver hefur rétt á sínum skoðunum, takk fyrir að svara ;)

Re: Ísfólkið – áhrif bókanna

í Ísfólkið fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Hehe, alveg sammála.

Re: hverjum likist þú?

í Ísfólkið fyrir 19 árum, 9 mánuðum
hehe, þakka ;)

Re: hverjum likist þú?

í Ísfólkið fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Ég held ég líkist sögu mest. Hlédræg, en sjálfstæð og læt ekki ganga yfir mig. Stórt ímyndunarafl, og hef gott lag á börnum.

Re: Ísfólkið – áhrif bókanna

í Ísfólkið fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Sammála Lindelou, mér finnst þetta alveg frábært:D

Re: Ísfólkið – áhrif bókanna

í Ísfólkið fyrir 19 árum, 9 mánuðum
hehe, að vísu. maður var að lesa hluti sem maður hafði aldrei pælt í áður. en eftir því sem ég varð eldri fór sagan að hafa öðruvísi áhrif á mig.

Re: Ísfólkið – áhrif bókanna

í Ísfólkið fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Veistu, ég elska þegar fólk kemur með almennilegt svar, segir virkilega sitt álit á greininni. En takk fyrir hrósið. Ég er sammála þessu með að bækur eiga ekki að hafa of mikil áhrif á mann nema maður vilji það. Held hinsvegar að ég hafi viljað það, svo ég er sátt. Hef aldrei saknað þess að vera kristin. En eins og ég sagði áður ber ég engu að síður mikla virðinu fyrir trúnni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok