Lotr myndirnar eru tvímælalaust bestu myndir sem ég hef séð, og þá sérstaklega nr. 2. Ég hef lesið bækurnar líka, og finnst ekki mikð vanta í myndirnar. Leikararnir finnst mér frábærir, og þeir vinna sín verk vel, þrátt fyrir mislangan feril á hvíta tjaldinu. Tolkien samdi meistaraverk, og bjó til nýjan heim, sem aðeins þeir sem hafa nógu gott ímyndunarafl geta séð fyrir sér. Peter Jackson hefur unnið vel að myndunum, og það segir sitt að seinni myndin fær hvergi færri en 3 stj-rnur hjá gagnrýnendum.