Ég var sem sagt á HP í gær og það pirraði mig alveg óstjónlega að þegar Frank Bryce (húsvörðurinn)Er að hlera samtalið milli Voldemort, Ormshala og Barty Crouch Jr, að stólinn hans Voldemorts snýr ekki baki í Frank heldur svona á hlið…

Svo eins og hefur komið fram, allt þetta sem vantaði og þegar Dumbledore ræðst að Harry þegar hann var valinn meistari.

Pirrar mig líka hvað Quidditch völlurinn breytist alltaf milli mynda..

Er ég að rugla, en var völundarhúsið ekki á Quidditch vellinum?

Kannski óþrafa pirringur en okey.

Annars er myndin bara mjög fín, hefði alveg getað setið örlítið lengur og haft hana aðeins nákvæmari en þetta minnir mann bara á það að bækurnar eru bestar!