Þó flest séu dáin & foldu nú náin,
færustu skáldin & ljóðsmiðir.
Þó léleg sé spáin þá lifir enn þráin,
og lærast enn fræðin & orðsiðir.

En lítið ég gef í þá lúða sem yrkja,
litlaust & óstuðlað helvítis drasl.
Óbundinn kveðskap tekst aðeins að virkja,
örfáum snillingum -langt eftir- basl.

Lærið þið reglurnar, ljóð munu skána,
lofa ég ykkur því Suttunga drykkur.
Aldrei skal falla til fávita´ & bjána,
frekari ráð ei í bráð mun uppgefa´ ykkur.