Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Ungir Íslendingar og ferðalög

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það sem að hindrar mig í að gera þetta er: Í fyrsta lagi þá nota ég linsur og hata gleraugun mín þannig að ég þyrfti að vera með aukalinsur og fleira og taka þær úr yfir nótt o.s.frv. Í öðru lagi þá er ég hrædd um að ég yrði rænd eða jafnvel nauðgað. Ef það eru margir saman þá þarf alltaf að gera einhverjar málamiðlanir um hvert á að fara o.þ.h. Í þriðja lagi þá finnst mér voðalega gaman að fara í 2-3 vikna sólarlandaferðir meðan ég er ung til að skemmta mér og slappa af. Síðast en ekki síst...

Re: Ólöglegt?

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég hélt að það kostaði ekkert að hringja í þetta þjónustunúmer hjá vodafone. Hefur allaveganna ekki komið niður á mínum símareikningi.

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég er alveg sammála þér. Ef maður ætlar að vera með einhverja manneskju/logo á bolnum/peysunni sinni þá ætti maður að vita fyrir hverju hún/það stendur. Þessir inniskór eiga ekkert eftir að virka þegar kólnar - ég held mig bara við mín rússkinnsstígvél sem eru nokkurra ára gömul.

Re: Ég veit þetta telst ekki sem skólamál!!

í Skóli fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Já, bara þannig að þú vitir það þá las ég síðust línurnar og lagði mig fram við að skilja þær svo ég gæti reynt að hjálpa þér eitthvað. kv. snikkin

Re: Ég veit þetta telst ekki sem skólamál!!

í Skóli fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Fyrst af öllu langar mig að benda þér á að enn er stytting á orðinu ennþá þannig að frásögnin þín meikar ekkert sens. Ég reyndi ekki að skilja þetta vandamál þitt þar sem það er augljóst að þú ert bara krakki. Hvernig væri bara að segja sannleikann - ekki vera með strák sem þú ert ekki hrifin af og please, ef þú skrifar um svona vandamál aftur skaltu setja það á rómantík eða eitthvað. Leiktu bara við þá stelpu sem þér finnst skemmtilegust. Mjög einfalt.

Re: Chelsea til Íslands !!!

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Rosalega yrði gaman að fá Chelsea hingað til landsins. Vona að þetta gerist - ef ekki þá er bara ekkert við því að gera.

Re: Bankarán við Eiðistorg

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
“Íslenskir bankaræningjar nútímans” = HÁLFVITAR Af hverju skilja þeir ekki bara vegabréfið sitt eftir í bankanum og spara löggunni þessar mínútur sem það tekur þá að fá almennilega lýsingu á þeim?? Ég hef fengið þó nokkrar hugmyndir um hvernig hægt sé að fremja bankarán. Veit samt ekki alveg AF HVERJU fólk er að fremja bankarán - það er ekki einsog það fái einhvern svakadóm. Frekar að láta taka sig við að smygla — þá færðu almennilegan dóm.

Re: Unglingar...heimsins stærsta vandamál

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA HA Chillaðu á nojunni maður, slakaðu á - samt skemmtileg pæling (ég skemmti mér allavega mjög vel) Argasta rugl líka.

Re: Sálin

í Heilsa fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það er augljóst að þú ert bara að finna sjálfa þig - auk þess sem unglingsárin eru ruglingsleg. Annars gæti tómleikinn stafað af skorti á væntumþykju, vináttu og fleiru. (Ég á svolítið erfitt með að hugsa 7 ár aftur í tímann) Auðvitað væri fínt ef þú gætir talað um þetta við einhvern en ég mundi nú samt bíða með paranojuna þangað til þú ert orðin 16 eða færð/ hefur fengið sjálfsmorðshugsanir (þ.e. ef þú færð þær mjööög oft). Ég hef kynnst þessari tómleikatilfinningu, fæ hana meira að segja...

Re: Megrunarleyndamál stjarnanna

í Heilsa fyrir 22 árum, 8 mánuðum
langar að benda þér á eitt að fótboltamenn þurfa að hafa mikið þol ef þeir vilja gera vel. Ekki reyna að segja mér að það að hlaupa 50 ferðir fram og til baka á körfuboltavelli samsvari því að hlaupa 50 sinnum fram og til baka á stórum fótboltavelli. En annars er ég sammála því að brennslan sé meiri í körfubolta því það reynir einnig á handleggina. Annars fær maður svipað út úr þessu. Reyndar er best að stunda sund því þar renna hitaeiningarnar af þér (eða það hef ég lesið nokkrum sinnum).

Re: fjarnám í fá?

í Skóli fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Innritun í fjarnám á haustönn í FÁ er lokið. Þú getur næst skráð þig inn í október eða nóvember (athugaðu málið þá) og þá á vorönn.

Re: Svindla kennarar á samræmdu?

í Skóli fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Þú ert pínulítið óheppinn að vera í þessari stöðu þar sem þú hefur ekki tekið samræmdu prófin. Ég tók þau á sínum tíma og var frekar kvíðin, en ég held að krakkar gleymi að hugsa að þessi próf eru í rauninni bara úr því námsefni sem þau hafa verið að læra í unglingadeild. Það er gert allt of mikið úr þessum prófum. En ef dóttir þín er með 7 og yfir í prófum í skólanum þá geturðu sagt henni að hún nái þessum prófum pottþétt ef hún haldi áfram á sömu braut. Þú ert greinilega áhyggjufullur og...

Re: Fyrsti kossinn...

í Rómantík fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Fyrsti kossinn minn var ógeðslegur. Það tók mig dálítinn tíma að fatta AF HVERJU fólk vildi kyssast svona yfirleitt. Mér fannst þetta bara vera meira svona slef út um allt í kringum kjaftinn á manni (gleymi því ekki þegar ég þurrkaði mér um munninn eftir að ég var búin að kveðja dúddann og hann horfinn). En ég komst að því seinna að þetta er alls ekkert svona!!! :o)

Re: Uppahalds bok

í Bækur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Öddu-bækurnar, án efa.

Re: Meðaleinkunn

í Skóli fyrir 22 árum, 9 mánuðum
mmm…. um 8,6 á 5.önn í framhaldsskóla. Ég skal láta þig vita hvernig ég stend á stúdentsprófinu mínu í vor!!!

Re: Að svindla eða ekki svindla

í Skóli fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Allt í lagi… þú kannt að bjarga þér en hvernig stendurðu ef þú ætlar að taka fleiri einingar í þessu ónefnda námi (sem ég býst við að sé eitthvað tengt tölvum)?? Þú ætlar kannski ekkert að gera það en það skiptir í rauninni ekki máli. Ég hef nokkrum sinnum ætlað að svindla en aldrei gert það. …. Jú einu sinni, en þá þurfti ég að skila ritgerð og það varð dauðsfall í fjölskyldunni þannig að mágkona mín lét mig fá sína sem ég lagfærði aðeins og skilaði inn. [Hún skilaði mér 10 í einkunn :o) ]...

Re: 18 ára og undir á djamminu!

í Djammið fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég skal segja þér hvað mér var sagt að gera eftir að hafa verið rekin út af kaffihúsi á fimmtudegi fyrir að vera undir tvítugt (verð tvítug í des). Þjónninn sagði mér að þeir sem væru undir tvítugt ættu að vera heima að horfa á vídjó!!! Þarna er kannski komin ástæðan fyrir offituvandamálinu - allir undir 20 eiga að vera heima að horfa á vídjó!

Re: Dyravörður...Þetta er heimsins versta afsökun!

í Djammið fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Dyraverðir eru furðulegir. Ef ég er á djamminu með strák kemst ég inn á stað. Ef ég er með stelpunum þá kemst ég ekki inn. Furðulegt!!! En maður verður tvítugur eftir 3 mánuði og 3 vikur!!! Þá verður gaman.

Re: Vandamál.

í Heilsa fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Endilega láttu vita hvernig fer. Gott að vita svona fyrir dætur sem maður eignast kannski í framtíðinni. Annars ertu ekki búin að vera það lengi á blæðingum að þær eiga eftir að verða reglulegar. En… einsog ég sagði… láttu vita hvernig fer.

Re: Ýmind stelpna

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Nú veit ég ekki hvaða stærð þú notar en ég er í stærð 16 og finn föt á mig í Vero Moda, Oasis, X-inu Kringlunni og Hagkaup. Auðvitað finn ég föt á fleiri stöðum en þetta eru staðirnir sem ég er pottþétt á að finna föt sem passa.

Zaxi og skortur á athygli

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Jæja elskan mín… fyrst þú hefur greinilega ekki lesið svörin hérna… aðeins litið augnablik á eitthvað sem ég skrifaði. Ekki það að ég muni eitthvað voðalega vel eftir því sem ég skrifaði en ég gæti trúað því að ég hafi notað þetta í sambandi við að ég sé um heimilið mitt (sem mér fannst mikið mál meðan mér líður illa). Einsog ég hef tekið fram (tvisvar áður held ég) þá er ég haldin þunglyndi og þegar ég er þunglynd (ATH ég er stelpa sem þú ættir að hafa getið lesið af svörunum ef þú værir...

Re: Er þetta eðlilegt?

í Rómantík fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Jájá… allt er eðlilegt… nema að þú ert svo ungur að þú átt að vera að safna þér reynslu. *blikk, blikk* Hafðu engar áhyggjur, vertu ekkert að væla yfir henni, hún kemur aftur ef hún vill. Svona er lífið

Re: tattoo framhald:

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Alveg beint á ökklann er örugglega sárt. Er með eitt rétt fyrir ofan ökklann (pínu stórt fyrir stelpu) og það var geðveikt vont… í byrjun. Svo dofnaði þetta allt saman og ég var eiginlega bara sofnuð á stólnum hjá vini mínum sem gerði tattúið. Það tók um 3 klst. En annars er hægt að losna við lítil tattú með því að láta tattúvera yfir þau. Eða svo er mér sagt. Ég ætla að láta að reyna á það þegar ég á fullt af pening og setja yfir það sem ég er með á öxlinni.

Re: !pirrandi við foreldra!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Nei, nei… ég geri mér alveg grein fyrir því… þegar mér líður vel. Einsog ég sagði þá brenglar þunglyndið hugsunina mína frekar mikið. Bað ég hann ekki afsökunar?? Nú?? Jæja, þá geri ég það hér með. Þú, 16 ára strákur sem ert að fara að eignast barn, ég vona að þér gangi vel og óska þér alls hins besta um leið og ég biðst fyrirgefningar á því sem ég sagði. Og núna nenni ég ekki að fá fleiri pósta á mig þar sem stendur að fólk er búið að svara þessum “skemmtilegum” svörum mínum. Takk fyrir og...

Re: !pirrandi við foreldra!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Selena: Svar við báðum þínum innleggjum. Mér finnst mjög auðvelt að mála öskrandi börn út í horn. Það er ekkert leyndarmál og það vita flestir sem þekkja mig. -Persónulega vona ég þín vegna að sonur þinn kynnist því ekki að verða lagður einelti. -Í sambandi við hvað hann er lífsglaður þá gæti það átt að breytast þegar hann eldist. (sorry, einföld staðreynd þar sem flestir fá þunglyndis- og sjálfsmorðshugsanir einhvern tímann á ævinni). -Með það að þið mæðginin séuð góðir vinir þá efast ég...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok