Þessi grein fjallar ekki 100% um útlitslega tísku heldur bara á flestum sviðum.

Undanfarið hef ég tekið eftir því að það er komið í tísku að ganga í bolum úr búðum á borð við Dogma með allskonar áróðri framan á. Allt í góðu með að ganga í boli með einhverjum skemmtilegum óróðri eða bítla bol eða einhverju slíku en mikið af því sem er flott að ganga í er t.d. bolur með Che Guevara. Málið er að stór hluti hópsins sem gengur í bol með Che Guevara hefur ekki hugmynd um hvað þessi maður gerði annað en byltingu eða geta tengt hann að einhverju leiti við Kúbu. Annað dæmi eru bolir með Anarchy merkinu margar hafa heldur ekki hugmynd um hvað Anarkismi er annað en pönkarar ganga í svona og þess vegna ætla ég að gera það. Tískan er orðin að einhverju heilaþvotti ég mundi aldrei láta sjá mig í Che Guevara bol afþví ég styð einfaldlega ekki Kommúnisma stefnuna hans. Önnur spilling í tískuna er eins og ég var að lesa hér um brjóstastærðir. Hvernig getur líkaminn verið í tísku á einhverjum sviðum sem er varla hægt að breyta nema með einhverjum aðgerðum það er einfaldlega fáranlegt. Eins og stór typpi eru í tísku núna samkvæmt Bleikt og Blátt ég mundi aldrei leggja á mig að fara vinna að því að stækka typpið á mér til að vera með eitthvað stórt typpi og síðan kannski eftir hálft ár þá er kúl að hafa lítil typpi. Svo ég hlaupi úr einu í annað þá get ég tekið sem dæmi að allt í einu drekka allir pepsi afþví það er flottara að drekka Pepsi í kók (á aðalega við um stráka svo ég viti) flestir þessara stráka sem hoppuðu ein daginn úr pepsi yfir í kók hafa ekki hugmynd um hver sé munurinn á pepsi og kók og finna engan mun ástæðan fyrir að þeir drekka pepsi er að það er kúl að drekka pepsi. Tískan hérna heima er svo lítil og hræðilega spillt núna er flott að vera í einhverjum svona inniskóm sem eru með einhverju skrauti að framan og næstum hver einasta stelpa á svona skó og allavega eitt par afþeim þetta finnst mér ekki flott mér finnst það ekki flott að ALLIR séu eins ég veit ekki hvað mikið af þessum hlutum heitir en mér finnst þetta bara komið 3 skrefum yfir strikið.


Jæja látið núna í ykkur heyra, og afsakið hvað ég hljóp úr einu í annað hafði svo mikið að segja að ég komst ekki yfir að segja allt svo ég varð að stökkva úr einu í annað áður en eg mundi gleyma hvað ég ætlaði að segja ;)