Ég hef verið að pæla í þessum skóla í hva, ein 4-5 ár núna og planið var alltaf að skella sér eftir stúdentinn, sem sé eftir ár :) Amma var í þessum skóla og mælir eindregið með honum, það er einmitt ósjaldan að maður er í mat hjá henni og fær e-ð dýrindis gott að borða að amma segir: „Jah þetta lærði maður nú á Hallormsstað“.