Satt hjá þér, t.d Levi's gallabuxur, þær hafa alltaf verið svo ofboðslega dýrar á Íslandi en endingin á þeim verið ekki neitt sérstakt. Á meðan er það a.m.k mín reynsla að Wrangler merkið er mjög gott, ekki eins dýrt, samt flottar gallabuxur og snið sem að eru mjög fín. En varðandi Sautján, þessi búð er alveg ofboðslega dýr og mikið af fötum sem að eru undarlega ljót eða það finnst mér a.m.k. En þetta er ekkert nýtt, svona er þetta búið að vera árum saman.