Frábærlega orðað hjá þér að þú hafir búið í þessum buxum, ég er eiginlega sammála þér, og endingin á þeim er hreint ótrúleg. Það eru þá fleiri en ég sem að keyptu margar, mínar uppáhalds eru og voru brúnar, þær eru frekar útvíðar að neðan en rosa þröngar yfir rass og læri. Samt svo þægilegar, þetta polyester efni er svo mjúkt og líka svo falleg áferð á þessum buxum, sniðið er líka mjög vel heppnað. Einhvern veginn get ég ekki hætt að vera í þessu, þó að sumir segi að þetta sé orðið úrelt og...