Ég æli út í vegakant, ógeðslegt
Horfi á alla hina, óhugnanlegt.
Aldrei ætla ég að drekka aftur.

Labba niður bankastræti, úrillur
Labba á fólk og dýr, blindfullur
Aldrei ætla ég að drekka aftur.

Dett á götuna sofna þar, guð hættu þessu
Fólk labba framhjá mér, berja mig í klessu
Aldrei ætla ég að drekka aftur.

Kem heim, það er búið ræna öllu hér
En ég hugsa ekkert um það, læt bara renna af mér
Aldrei ætla ég að drekka aftur.

En svo næstu viku, skipulegg ég það
Að fara út á lífið, leggja aftur af stað
Djöfull ætla ég að drekka aftur.