Ástfangin skýin speglast
í brosandi vatni
og æðarblikinn rennir hýru auga
til kollunnar sem syndir feimin framhjá
en lítil andahjón rétt við bakkann kúra
flugvélar tvær hátt á lofti fljúga
í upphafinni hrifningu og unað
og bílarnir eltast hvor við annan
á trylltri ferð yfir Tjarnarbrúna.