Ég varpaði sprengju á þitt umráðasvæði.
Er þetta eitthvað einkastríð,
milli þín og þeirra?
Þau sem reyna í gríð og erg að veifa hvítum fánum
framan í prógrammaða hleypidóma þína.
Þar sem sturlaðir höfuðstafir ráða ríkjum
og stuðla gegn öllu sem óvenjulegt er!

Hiklaust eru þau
skotin niður
af vægðarlausri orustuþotunni merktri “þínum” skoðunnum.

Átt þú heiminn?
Eða brást hann þér?
Kannski er “þetta” þinn eini heimur,sjúki heimur að mínu mati
en hver veit,
Ekki ég.
Ekki þau..
Og veistu hvað,
og okkur er í rauninni sama.