Þú siglt hefur í tilverunnar tjörnum
í tuttugu og eitt ár vinur minn
og byrði þína þolir báturinn
gegn brotsjó lífsins heldur uppi vörnum

Við finna munum leið á vegi förnum
um framtíð alla fyrir vinskapinn
Ég veit að alla tíð mun vegur þinn
verða bjartur og stráður himnastjörnum

Misstu aldrei móðinn hvað sem gengur á
mundu það í öllu lífsins harki
hengdu ekki hugann í marklaus mál

Í vægðarleysi veraldar þú munt sjá
að vinir skipta mestu máli Bjarki
Í dag, vinur, við drekkum þína skál