Ég læddist inn
um dyr hjarta þíns.
Sá fegurð sálarinnar
speglast
í sal drauma þinna.

Ég gekk hljóðlega
í þögninni.
Silfurstrengurinn
tindraði í loftinu.
eins og sverð.

Ég elska þig
fyrir það
hver þú ert
hvernig þú elskar.
Sálir okkar eru eitt.