Þú sagðir
ég er að fara
og ég leit upp
og spurði

hvert

Þá laustu niður
eftir
heilt ár
og kysstir mig.