Ég get ekki grátið lengur,
en einn góðan veðurdag mun ég gjósa
einsog eldgos,
tilfinningarnar munu koma vellandi niður
einsog sjóðandi heitt hraunið
og brenna alla sem standa mér nærri,
í guðanna bænum færðu þig fjær svo þú brennir þig ekki.