Ef ég gæti

ef ég gæti ferðast
um í tíma og rúmi
myndi ég fara
aftur til þeirra
tíma er ég var
óskrifað blað

ég myndi hafa með mér
strokleður og stroka út
villurnar jafn óðum

og í leiðinni
þetta ljóð…

Gberg
Gberg