Vinkona mín hefur að undanförnu verið ásótt af vissri tölu sem á víst að tákna skrattann, hún fékk sundkort sem var númer 666, flugmiða með sömu tölu og ýmislegt í svipuðum dúr… Og fyrir ekki svo löngu fann hún öfugan kross inni á almenningsklósetti og var bandið á krossinum slitið. Hún geymir krossinn inní herberginu sínu uppí hillu en inní þessu herbergi er reimt og hefur það verið að færast í aukana. Eitt sinn eftir að hún vaknaði upp eftir vondan draum var hún sannfærð um að ef hún gengi með krossinn myndi hann vernda hana en ég benti henni á það að það gæti alveg eins verið að “eitthvað” komist nær henni ef hún gengur með krossinn. Og nú langar hana að prófa að sofa með krossinn undir koddanum, svona í tilraunaskyni. Við erum báðar mjög forvitnar um hvort eitthvað gerðist ef hún myndi sofa með hann undir koddanum því okkur langar að vita hvað er í gangi en kunnum engin svör! Ætli þetta sé óhætt eða eruð þið með einhverjar bertri hugmyndir um hvernig hægt er að komast að því hvað “þetta” er að reyna að segja?