Það er föstudagskvöld, ég er kominn heim úr vinnuni (þaðan sem ég borga skattana mína) og konan mín er búin að elda ágætis mat(fyrir launin mín sem ég vinn mér inn fyrir) og krakkarnir eru komnir í rúmið. Ég fæ þá brjáluðu hugmynd að fara og taka vídeóspólu og myndin Lost Higway verður fyrir valinu(eins og ég hafi ekki séð hana 50 sinnum), Gunni og Gunna vinafólk okkar koma í heimsókn og við setjumst niður og förum að spjalla.
Á meðan að við spjöllum rúllar Gunni eina jónu eins og honum er einum lagið, þegar því verki er lokið fáum við okkur einn góðan smók.
Þar sem ég sit í ley z boy stólnum mínum og held niðri í mér andanum í ca 30 sek með lokuð augun fer mér að líða eins og ég þurfi aldrei að anda aftur, en svo……anda ég hægt út og opna augun og finn hvernig afslöppunin og rólegheitin koma yfir mig, það er alger þögn inní stofuni.
Eftir augnablik heyrist í Gunnu….“tíhíhí” og við hin gersamlega springum úr hlátri, af því að við ráðum bara ekki við það.
Eftir að búið er að skiptast á bröndurum og sögum í ca 1 og hálfan tíma er ákveðið að skella spólunni í tækið.
Myndin er (eins og þeir sem hafa séð hana vita) frekar ruglingsleg en samt alveg pottþétt til að pæla í, því hvert skipti sem þú horfir á hana geturu fundið eitthvað nýtt sem þú hefur ekki séð áður, eins og þegar gaurinn er í fangelsinu og svo daginn eftir er bara komin einhver annar í fangelsið!!??!! Þá byrjar bara önnur mynd algerlega óskyld við byrjunina á myndinni.
Eða þegar gaurinn kemur til aðalsöguhetjunnar og segist vera heima hjá honum og biður hann að hringja í sig!!! Og húsið sem brennur afturábak!!!! Þetta eru hlutir sem hægt er að velta sér uppúr aftur og aftur.
Eftir þessa tæpa 2 tíma sem myndin er, þá er farið að diskútera myndina.
Við ræðum þetta í bak og fyrir og skiptumst á skoðunum í svona klukkutíma einn og hálfann, þá ákveða Gunni og Gunna að hringja á bíl og skella sér heim.
Ég og konan förum bara upp í rúm og leggjumst til hvílu.
Þar sem ég ligg í rúminu og er alveg að lognast út af þá fer ég allt í einu að hugsa…….Shit! ég er EYTURLYFJA neytandi!!!
Vá hvað ég er feginn að hafa ekki drepið neinn eða rænt einhverju í allri vímunni, hjúkket mar.
ibbets úber alles!!!