Mér finnst þetta vera alveg týbískt dæmi um fylgjur, sem koma til þín, til að láta þig vita að manneskjan sem þær tilheyra sé að koma! Þetta hefur aldrei komið fyrir mig, eina fólkið sem ég “veit að er að koma”, eru mamma og amma. Ég finn líka alltaf ef þær þurfa að tala við mig, og svo stuttu seinna hringir mamma/amma. Og þetta virkar líka í hina áttina, ef ég er leið eða eitthvað þá hringir mamma alltaf og spyr hvort það sé ekki alltílagi ! Njóttu bara þessa einstaka hæfileika þíns :) Kveðja, Ljúfa