Mér finnst það mjög sætt að bjóða stelpu á date, og mér finnst það allsekki gamaldags. Það er alveg frábær leið, að fara saman á kaffihús, og spjalla saman og þá er hægt að sjá hvort þið eigið saman eða ekki. En það að þér hafi ekki tekist að fá stelpu með þér á stefnumót, held ég að sé bara að þú átt eftir að hitta þessa einu sönnu. Svo er náttúrulega alltaf til í dæminu að þú sért bara að nota einhverjar skrítnar “pickup-línur”… En allavega, gangi þér vel. Kveðja, Ljúfa