Samkvæmt því sem Lucas segir í viðtali sem er á undan myndunum sem ég á þá skrifaði hann fyrst SW ESB og ROTJ sem eina langa sögu, þar fyrir utan þá var hann líka búinn að skrifa forsögu og hvaðan persónurnar komu. Lucas hélt að hann gæti aldrei gert allar myndirnar þannig að ákvað að gera fyrsta hlutan en síðan þegar það gekk upp þá ákvað hann að gera hinar tvær, SW hét ekki Episode 4 A New Hope í fyrstu sýningarlotu, því var bætt inn seinna.

Nú verð ég að minnast á það að Lucas er ekki alltaf sjálfum sér samkvæmur þegar hann er að tala um þetta, það er jafnvel talið að hann hafi fyrst ætlað að búa til kvikmynd eftir Flash Gordon teiknimyndasögunum en síðan hætt við það af því að annar leikstjóri var búinn að tryggja sér réttinn á FG.
<A href="